Vika í Elínu
Jæja, fórum með búslóðina okkar í skip í dag. Verður sent með Helgarfellinu á fimmtudagsnótt og það er eins gott að einhenti stýrimaðurinn missi ekki stýrið í þetta sinn. Skutluðum þessu niður í Samskip í morgun. Verður komið á áfangastað á Grönegatan 2 í Malmö eftir sirkus 1 1/2 viku. Verður keyrt alveg upp að dyrum.Elín fer eftir viku. Allt að gerast. Skólinn hjá henni byrjar 22.ágúst. Fyrst verður svona kynningarvika og almenn kennsla hefst svo 29.ágúst. Hún er náttúrulega orðin ótrúlega góð í sænskunni enda ekki gert annað en að hlusta á tungumálanámskeiðið!! Ótrúlegar framfarir!!!
Svo þessi bloggsíða fer að verða meira "update-uð" en áður. Svo keep posted!!
1 Comments:
Getur alveg byrjað að finna góðar uppskriftir fyrir heitum rétt eða köku sem þú átt að koma með áður en þú ferð út, gaupi litli.. Spurning að láta Elínu ekki pakka niður kökubókinni!!!
Skrifa ummæli
<< Home