sunnudagur, nóvember 27, 2005

Bakstur og tölvupuð

Þessi blessaði tölvuskratti sem við eigum er enn að leika okkur grátt. Það virðist vera að það geti ekki allir fítusar virkað í henni í einu. Svo ef það er installað nýjum hlutum klikkar eitthvað annað og annað gengur til baka. Ég hef dáðst að þolinmæði hans Guðjóns, hann er búinn að sitja yfir tölvunni næstum alla helgina og reynt að laga tölvuna og núna virðist allt virka....sjáum hversu lengi þetta helst, annars fær hún að fjúka út um gluggann....

Maður er ekki húsfrú með húsfrúm nema að baka fyrir húsbóndann á aðventunni. Agla kom yfir á laugardag í helgarheimsókn og við hrærðum í nokkrar smákökur, súkkulaðibitakökur, snikerskökur og appelsínukökkur. Þannig að það verður á boðstólnum hérna kaffi og með´í alla aðventuna ;) Eftir nokkuð gott dagsverk í smákökubaksrinum var endað daginn á að broða home made pizzu og svo farið í bíó að sjá Harry Potter, alveg ágætis mynd þar á ferð... það er þá líklega orðið tímabært að klára 5. bókina, amk. áður en næsta mynd verður sýnd ;)

Það er orðið mjög jólalegt um að litast hérna í Malmö því í dag voru jólaljosin kveikt og miðbærinn iðaði af lífi, búið að setja upp litla jólalega kofa á göngugötuna þar sem selt er eitt og annað til jólanna auk bakkelsis og jólaglöggs. Það er alveg brill að fá loksins jólaljósin til að lýsa upp skammdegið og vetrarkuldann.... já veturinn er kominn með léttum kulda og einstaka snjókorni.

Á morgun ætlum við að skreppa til Helsingborgar í verslunarleiðangur. Guðjón er í fríi og ég er líka í "fríi", það er alla vega ekki skóli hjá mér fyrr en á föstudag. Vonandi náum við að klára sem mest af jólagjafainnkaupunum....

6 ummæli:

  1. frábært að sjá myndir :) Áttu ekki fleiri myndir frá því í sumar? Ég verð að fara að fá mér digital vél...

    SvaraEyða
  2. Sæll Guðjón minn. Þetta er afi þinn frá norðan.Amma þín er að prjóna hosur og vetlinga handa þér vinur og vænti ég þess að þú munir njóta þess vel. gaman væri nú að hafa þig nærri svo við gætum kveðist á einsog í gamla daga. Gyllinæðin er alveg að drepa mig en smyslið sem þú notaðir og Elín sendi mér er að virka ljómandi vel.amma þín er að hnoða í jólaköku og og ég að strauja skyrtuna mína. Viðhaldið mitt átti 75 ára afmæli um daginn og fórum við í árbæjarsafnið í tilefni dagsins. Bið að heilsa öllum í Brasilíu og vona að þið hafið það gott í sólinni.

    P.s . Hvernær er aftur hátíðin sem kerlingar fækka fötum hjá ykkur.Láttu mig vita í tíma svo ég geti lamið úr brókinni og heimsótt ykkur.


    Kv afi

    SvaraEyða
  3. hahhah þú ert ansi klár gaupi minn, tomminn var að missa það í work í morgun:) HVer annar enn Tommi.. KV frá duty anna

    SvaraEyða
  4. Heil og sæl
    Vildi bara kasta kveðju á ykkur!:)
    Hlakka til að sjá ykkur um jólin. Hafiði það gott þangað til!

    SvaraEyða
  5. Gaupi, nú er það gossip!!! Helduru ekki að Annsan sé með köku í ofninum.... Matti og Burki keyptu Mjóddina og allt náttlega vitlaust yfir því.. Rannzy komin í krossinn og María er séð og heyrt stúlka vikinar.. Annars hefur voða lítið gerst síðan þú fórst... Nema að páfinn kíkti á okkur í gær og Madonna.. Over and out;)

    SvaraEyða