Update!
Komið sæl og blessuð. Eins og þið takið eftir eru komnir íslenskir skafir. Ástæðan er einföld. Netið og tölvan virkar. Allt eins og það á að vera.Af okkur er það annars að frétta og við vorum í partýi í gær í Burlow. Það er annars þar sem ég kem til að vinna í desember og eftir jól. Í Burlövcentret. Pólsk skólasystir Elínar bauð okkur í partý. Við vorum þar í góðu pólsku yfirlæti með 2 pólverjum, 3 mexikönum og einum nojara. Mikið stuð.
Annars gengur vinnan bara vel. Allar búðirnar í Svíþjóð eru að fara að senda einn fulltrúa frá hverri búð á fund í Stokkhólmi og ég mun fara fyrir Burlöv búðina. Því þar kem ég til með að vinna. Þetta er bara dagsferð en samt spennandi. Aldrei farið til Stokkhólms áður. Það verður bara fjör.
Við erum s.s komin á MSN, Skype og allt annað.
Skype-id okkar eru:
Guðjón: gudjon_ingi
Elín: elinbua
Við Elín erum líka búin að vera dugleg að kaupa okkur "utanlandsferðir" að undanförnu. Elín er að fara með Öglu að heimsækja Ellen í Leipzig í febrúar og helgina eftir það er ég að fara til Frankfurt og hitta Gumma Óskars. Við ætlum á Frankfurt-HSV og svona. Það verður stuð.
Ég keypti líka ferð til Osló. Við Jakob og Mads erum að fara að hitta Tore í Osló og keyra til Hemsedalen þar sem nokkrum dögum verður eytt í norskum fjell-hytte á einu af besta skíðasvæði í Noregi. Það verður massa snilld. Að ógleymdri Íslandsferð um jól.
Við þurftum að strauja Windows svo ég missti allt í outlook addressu bókinni minni svo ég ætla að biðja alla um að senda mér e-mail. Jafnvel tómt e-mail ef fólk hefur ekkert að segja.
gudjon.ingi@islandia.is
Nóg í bili
3 Comments:
Til hamingju með tölvumál og utanlandsferðir :) Hlakka mikið til að fá Elínu í heimsókn í febrúar, jibbbbííjeii.
Vá, það er ekkert annað, bara verið á flakkinu!!! Ekkert smá gaman. Gott að heyra að allt er komið í lag;)
Annars eru bara 9 dagar í Parísarferðina okkar og það verður að segjast að það vantar alveg Gaupa litla og bullið í honum!!!
Kv frá Duty
Ú hú loksins búin að finna þessa síður ykkar. Sé að þig hafið það bara gott í Svíaríki. Heyrumst síðar. Kv Sissa frænka.
Skrifa ummæli
<< Home