Frá Grænugötu, og sænska veikin!
Sælir og blessaðir landsmenn (Íslendingar, ekki Svíar)Kominn aftur á Grænugötu. Lenti á Þriðjudagskvöld og sá mér til mikillar jóla-ánægju að það er allt á kafi í snjó hérna!! Aldeilis jólalegt. Þeir hafa stolið íslenska snjónum bölvaðir.
Ferðin til Íslands var mjög fín, en því miður allt of stutt. Náði ekki að hitta alla sem mig langaði að hitta. Þeir verða bara að eiga það inni þar til næst. Fékk fullt af fínum gjöfum. Allt frá bollum til handryksugu. Kom svo við í Optical Studio i Leifsstöð á leiðinni út. Þar fékk maður bara kram og kossa hægri vinstri. Svona er maður æðislegur. Erfitt að vera ég. Aldrei séð flugstöðina svona tóma. Maður fékk líka bara að ráða því hvar maður sat í vélinni. Nett. Konan sem var að tékka inn sagði að það væri voða lítið af fólki að ferðast. Enda bara vitleysingar sem eru í útlöndum á árámótunum. Tek undir það.
Fór í vinnuna í gær. Alltaf jafn brjálað að gera í Burlöv. Alveg kreisí.
Svo kom pestin.......... er s.s EINN, notabene EINN, heima að hjúkra sjálfum mér. Er hérna með einhverja sænska veiki. Höfuðverkur, svimi, illt í augunum, hálsbólga...bara name it. I got it. Samt örugglega ekki með hita. Sem er gott. Ég ÆTLA nefnilega að vera hress á laugardag þegar við fötum í áramótapartýið í Skanör hjá honum Ricard. Alveg á hreinu.
Svo nú ætla ég upp í rúm með hóstann minn, FCK trefilinn, Strepsils og hóstasaft.
Lifið heil.
2 Comments:
Æjjjjj kúturinn.
kv. odd
Alveg svekkt að missa af Gaupanum "okkar" í dutýinu!!!! En hafðu það rosa rosa gott kutur!!! kveðja Anna Þóra
Skrifa ummæli
<< Home