Tjillað á Grænugötu
Það ber ekki mikið til tíðinda af okkur hér á Grænugötu á nýja árinu. Það er enn legið á meltunni eftir allt átið um jólin.
Við áttum mjög huggulegt gamlárskvöld útí sænskri sveit þar sem við vorum í 13 manna boði og snæddum hreindýrasteik og aðrar kræsingar. Á miðnætti var svo haldin flugeldasýning fyrir liðið, allt í boði gestgjafanna :) Það voru ekki strengd nein áramótaheit þetta árið, það er enn verið að vinna á heitum síðustu ára.
Á morgun er ræs klukkan hálf átta. Við ætlum með fyrrnefndu sænsku gestgjöfum á skíði til Vallåsen sem er hér rétt norður af Malmö, ca. 1,5 klst akstur. Ég vona bara að það verði nægur snjór (það eru allir snjóskaflarnir farnir héðan í Malmö). Á morgun er rauður dagur í Svíþjóð þannig að Guðjón er í fríi og fær því þriggja daga helgi, smá uppbót fyrir frí-leysið um jólin.
Í gærkvöldi var bíókvöld á Grænugötu sem er svo sem ekkert frásögu færandi nema hvað það vantaði popp á bíókvöldið og aðeins var til poppmaís. Guðjón rak upp stór augu yfir þessum poppmaís og það kom í ljós að hann hafði aldrei poppað í potti eða séð það gert-aðeins lesið um það í sögubókum að það hafi verið gert hér fyrr á öldum! Annað hvort hefur örbylgjuofninn komið fyrr á Seltjarnarnesið eða þar aldrei borðað popp.....eða hvað??
Ég er enn í fríi, skólinn byrjar ekki fyrr en 16. jan. Hér er því tjillað á daginn og svo skemmti ég Guðjóni eftir vinnu ;)
Hér koma svo nokkrar myndir sem voru teknar við hin ýmsu tækifæri í jólafríinu á Íslandinu....
2 Comments:
Að þú skulir ekki kunna að poppa alvöru popp..... ég er hneykslaður á þér! kv. odd
Popp kom einmitt fram á sjónarsviðið á sama tíma og örbylgjuofninn. Ekki skil ég alveg hvernig Gaupi hefur haldið að fólk poppaði í torfbæjunum hér á árum áður...
Annars mjög fínt að sjá ykkur skötuhjú um jólin. Misstuð af fínu áramótapartyi á Svitastígnum.
Guðjón á skíðum er alltaf falleg sjón.
Kv.Svenni frændi
Skrifa ummæli
<< Home