HA???? BLOGG!!!
Já, trúið því eður ei!! Blogg. Það hefur ekki sést blogg á þessari síðu í háu herrans tíð. Nu är det dags!! Lofaði líka ESB að ég skyldi blogga.
10 dagar í heimkomu hjá mér. Elín verður eitthvað aðeins lengur því hún þarf að skila ritgerðinni og vera "opponent" hjá annari stelpu.
Kominn með vinnu á sama
gamla góða staðnum. Verð í Keflavík, Duty og kannski eitthvað í Smáralind. Sjáum til. Búinn að kynnast mjög góðu málefni. Kíkið á það
hér. Vill einhver sponsera eina ferð fyrir mig? :)
Það er nú ýmislegt búið að gerast síðan við blogguðum síðast.
Við erum búin að:
-Fara til Noregs. Fórum í hytte í Hemsedal með Dafne og Lars og vorum svo í Osló hjá Hauki og Gro.
-Fara til Finnlands. Helsinki er brill. Mæli með því.
-Fara til Eistlands. Tókum bát frá Helsinki og vorum þar einn dag. Fín borg. (would you like to buy a russian passport?)
-Fara ófáar ferðir yfir sundið til Köben í ýmsum leiðangrum.
-Taka á móti gestum. Leipzig búar hafa verið í heimsókn. Ellen og Marcel. Kópavogsbúar líka. Svenni og Tinna.
-Pakka niður í 7 kassa. (Samskip kemur og sækir drasið 28.nóv)
-Drekka
jólabjór. Með Svenna og Tinnu, Janusi+Tinnu, Gumma+Kristínu, Oddi+Kristínu (ótrúlega fjölbreytt nöfn)
-Fara í Parken. Búinn að sjá 3 leiki.
FCK-Benfica (0-0), FCK-Bröndby (3-0), FCK-FC Midtjylland (2-2).
-Horfa á Liverpool á
Glorias með mismunandi árangri. (er samt ALLTAF í treyjunni)
Þetta er svona það helsta. Svo má fara í smáatriði á einstökum liðum, en ég nenni ekki að gera það hér. Þið getið bara hringt.
create your own visited countries mapor
vertaling Duits NederlandsÞegar maður er að velta fyrir sér hvar maður eigi að stinga næst niður þá sér maður að það er úr mörgu að velja. Spurning um að fara að skoða nýja staði-er aðeins búin að sjá 14% af heiminum sem teljast 33 lönd....
Framdekk óskast
ÞAÐ ER BÚIÐ AÐ STELA FRAMDEKKINU Á HJÓLINU MÍNU!!
Hvað er pointið í því?????
Af hverju tóku þeir ekki allt draslið??
Fávitar.
As days go by.....
Verzlunarmannahelgin:Kristín kom til okkar um verzlunarmannahelgina og fórum við í svona smá "road-trip". Hún kom til okkar á föstudagskvöldinu og var fram á sunnudag. Við gátum ekki látið hana dúsa eina í Köben, greyið. Tókum hana aðeins að okkur. Við höfðum fengið Volvo 244, 89 módelið lánað frá Rikard (aftur) og fórum í ferðalag. Ég vakti stelpurnar með látum á laugardagsmorgni kl.7 og við vorum komin út í bíl rétt eftir kl.8. Við keyrðum upp til Jönköping fyrst og spókuðum okkur í góða veðrinu. Gengum aðeins um bæinn og fengum okkur hádegismat og sýndum okkur og sáum aðra. Það var mjög fínt. Enda Jönköping alveg bjútífúll. Eftir það keyrðum við upp til Gränna, sem er smábær ca 10 mín akstur frá Jönköping (Jönköping er mitt á milli Gautaborgar og Stokkhólms, ef einhverjir vilja ímynda sér þetta). Þar eru búnir til hinir svokölluðu Polkagriser, sem eru heimsfrægir. Eru basicly Bismark brjóstsykursmolar frá Opal. Svona rauðir og hvítir. Þeir segja að þeir séu fundnir upp þarna eða eitthvað. Er ekki alveg viss. Anyway. Héldum svo stað heim um kvöldmatarleitið og vorum komin til Lundar aftur um 8 um kvöldið. Mjög fín ferð. Alveg markmið að reyna að sjá sem mest af Svíþjóð meðan við búum hérna. Eigum reyndar Stokkhólm og Gautaborg eftir. Á sunnudeginum var slappað af og farið aðeins að skoða í húsgagnabúðum og skuttluðum við svo Kristínu út á brautarstöð eftir það.
Fín helgi.
Síðan þá.......hefur svo sem lítið gerst. Daglegt líf ef þannig má að orði komast. Keyptum okkur reyndar ferð til Frankfurt, Elín og ég, Oddur og Kristín ætlum að heimsækja Sigþór, Lindu og fjölskyldu í Lúxembourg. Við erum búin að leigja bíl og alles. Verður frábær ferð. Fengum 2 fyrir 1 á Sterling. Elín er þannig séð lögð af stað til Íslands. Lilja og Agla komu til okkar í gær og var grillað og drukkið rauðvín. Sungið og spilað og dansað og læti. Lilja í miklum ham á dansgólfinu!
Þær fóru svo allar stöllurnar til Köben í dag og fer Elín svo með hádegisvélinni frá FI til Íslands. Hún ætlar að vera í viku. Mexíkósk skólasystir hennar kemur með henni til Íslands og verður fram á mánudag eða þriðjudag. Er ekki alveg viss. Ég kem svo á miðvikudagskvöldið og förum við svo saman tilbaka á sunnudaginn. Verður fín ferð. Menningarnóttin í Rvk verður næstkomandi laugardag svo maður fer náttúrlulega á það. Svo er líka Brothers Open golfmótið um laugardaginn. Munum s.s hitta alla fjölskylduna, svo gott sem. Verður fín ferð.
Alltaf gaman að koma heim.
Nóg í bili.
Síja.
Hitt og þetta
Jæja, kominn tími til að ég bloggi aðeins. Af okkur er bara allt það fínasta að frétta, við erum mjög spræk í eilífðri sól og sumri. Vinna og skóli ganga sinn vanagang. Guðjón er alltaf jafn ánægður í vinnunni. Sjálf er ég byrjuð á fullu á lokaverkefninu þar sem ég vinn 17 vikur á rannsóknarstofunni og svo ég skrifa ritgerðina. Ef allt gengur að óskum þá verð ég búin að skila af mér fyrir lok nóvember. ....Hvað svo? ómögulegt að segja til á þessari stundu....
HeimsóknirÞað hafa nokkrir lagt leið sína hingað til Lund í sumar, núna síðast voru hér þær stöllur Guðbjörg Þ og Lilja hjá okkur í heimsókn. Við eyddum saman helginni í Kaupmannahöfn hjá Öglu og svo komu þær með mér yfir og voru í 2 daga. Við skoðuðum Malmö, lágum á bryggjunni í sólinni, versluðum, borðuðum ís einn eða tvo og þrömmuðum um í Lund. Allt of fljótt að líða :( Takk kærlega fyrir komuna ezkurnar :)
Í lok ágúst er svo von á gamla settinu úr Berginu :) Þau ætla að vera á Eyrarsundssvæðinu í 10 daga og láta Lund að sjálfsögðu ekki fram hjá sér fara!
Svo er spurning hvort það sé ekki kominn tími á að gestir eins og Ellen Dröfn og fleiri góðir gestir fari að láta sjá sig á staðnum :) Allir velkomnir!
FerðalögVið erum komin enn og aftur á Volvo-kaggann (89 módel) sem Rikard lánar okkur og planið er að leggja land undir fót um helgina-enda Verslunarmannahelgi. Við ætlum samt ekki á útihátíð eða sofa í tjaldi útí móa heldur bruna upp til Jönköping og nærsveitir á laugardaginn. Kristín hans Odds ætlar að koma með okkur :) Svo verður bara látið ráðast hvert verður farið á sunnudeginum....meira síðar. Set inn myndir við tækifæri-fórum nefnilega tour de Skåne í júlí á sama kagga.
Ísland er svo innan seilingar. Það eru 9 dagar í að maður lendi á skerinu og nokkrir dagar í viðbót í Guðjón. Þetta verður stuð-aðeins að kæla sig niður eftir non-stop-sólarsumarið og fá sér netta lúku af íslensku nammi, ummmmm
Við skuldum ykkur blogg!
Kominn tími til að blogga aftur. Það er langt síðan við blogguðum síðast og viljum við biðjast velvirðingar á því.
Hitinn hérna í Svíþjóð er að drepa allt og alla. Búið að vera um 30 stiga hiti samfellt á fjórðu viku núna. Rosalegt. Það er varla hægt að vera úti. En þar sem maður vinnur inni í verzlunarmiðstöð þá sér maður aldrei sólina. Sér bara hvernig fólk er klætt. Og mér sýinst stuttbuxur og bolur vera trendið akkúrat núna.
Annars fer bara vel um okkur hérna í Lundi. Bærinn er aðeins að lifna við eftir mjög dautt sumar. Hálfur bærinn er stúdentar og þeir hverfa náttúrlega í sumarfríinu. Þá tæmist bara bærinn. En fólk virðist vera að koma tilbaka núna.
Okkur var boðið í giftingu í ágúst. Rikard, einn af ferðamönnunum frá síðasta sumri, er að fara að gifta sig og okkur var boðið. Þau, Rikard og Helen, eru búin að vera rosa næs við okkur. Hjálpa okkur að flytja, lána okkur bíl svo við getum ferðast um Skán og suður Svíþjóð, og þvíumlíkt. Rosa næs. Við eigum varla orð. Búin að reynast okkur vel.
Við erum á leiðinni á klakann í ágúst. Elín fer 12.ágúst og verður í 8 daga. Mexíkósk vinkona hennar úr skólanum ætlar að skella sér með henni og vera í 2-3 daga. Guðbjörg heldur upp á 30 ára afmæli sitt 12.ágúst og þar sem við vorum að fara á annað borð ákvað Elín að vera aðeins lengur en ég. Ég kem ekki fyrr en 16.ágúst og svo förum við Elín samfó tilbaka 20.ágúst.
Elín er annars bara að vinna á labbinu í skólanum og ég í mínu í Burlöv Center. Kann voðalega vel við mig þar. Góður mórall og góð stemning í vinnunni.
Svo þurfum við að fara að ákveða okkur hvað við viljum gera. Flytja heim, áfram í Svíþjóð, flytja til tunglsins? Allt hægt. Sjáum til hvað setur.
Það mun ekki líða eins langur tími fram á næsta blogg.
Góðar stundir.
Fleiri myndir
Sumarfri-Fra-Lux-Ger 066
Originally uploaded by Elin Hrund.Ég er búin að henda inn fleiri myndum frá Lúx og Þýskalandi. En þar sem myndirnar eru of stórar/margar þá var ekki hægt að setja þær allar á sama stað. Það er því nýr linkur fyrir þær hér