HA???? BLOGG!!!
Já, trúið því eður ei!! Blogg. Það hefur ekki sést blogg á þessari síðu í háu herrans tíð. Nu är det dags!! Lofaði líka ESB að ég skyldi blogga.10 dagar í heimkomu hjá mér. Elín verður eitthvað aðeins lengur því hún þarf að skila ritgerðinni og vera "opponent" hjá annari stelpu.
Kominn með vinnu á sama gamla góða staðnum. Verð í Keflavík, Duty og kannski eitthvað í Smáralind. Sjáum til. Búinn að kynnast mjög góðu málefni. Kíkið á það hér. Vill einhver sponsera eina ferð fyrir mig? :)
Það er nú ýmislegt búið að gerast síðan við blogguðum síðast.
Við erum búin að:
-Fara til Noregs. Fórum í hytte í Hemsedal með Dafne og Lars og vorum svo í Osló hjá Hauki og Gro.
-Fara til Finnlands. Helsinki er brill. Mæli með því.
-Fara til Eistlands. Tókum bát frá Helsinki og vorum þar einn dag. Fín borg. (would you like to buy a russian passport?)
-Fara ófáar ferðir yfir sundið til Köben í ýmsum leiðangrum.
-Taka á móti gestum. Leipzig búar hafa verið í heimsókn. Ellen og Marcel. Kópavogsbúar líka. Svenni og Tinna.
-Pakka niður í 7 kassa. (Samskip kemur og sækir drasið 28.nóv)
-Drekka jólabjór. Með Svenna og Tinnu, Janusi+Tinnu, Gumma+Kristínu, Oddi+Kristínu (ótrúlega fjölbreytt nöfn)
-Fara í Parken. Búinn að sjá 3 leiki. FCK-Benfica (0-0), FCK-Bröndby (3-0), FCK-FC Midtjylland (2-2).
-Horfa á Liverpool á Glorias með mismunandi árangri. (er samt ALLTAF í treyjunni)
Þetta er svona það helsta. Svo má fara í smáatriði á einstökum liðum, en ég nenni ekki að gera það hér. Þið getið bara hringt.