Við skuldum ykkur blogg!
Kominn tími til að blogga aftur. Það er langt síðan við blogguðum síðast og viljum við biðjast velvirðingar á því.Hitinn hérna í Svíþjóð er að drepa allt og alla. Búið að vera um 30 stiga hiti samfellt á fjórðu viku núna. Rosalegt. Það er varla hægt að vera úti. En þar sem maður vinnur inni í verzlunarmiðstöð þá sér maður aldrei sólina. Sér bara hvernig fólk er klætt. Og mér sýinst stuttbuxur og bolur vera trendið akkúrat núna.
Annars fer bara vel um okkur hérna í Lundi. Bærinn er aðeins að lifna við eftir mjög dautt sumar. Hálfur bærinn er stúdentar og þeir hverfa náttúrlega í sumarfríinu. Þá tæmist bara bærinn. En fólk virðist vera að koma tilbaka núna.
Okkur var boðið í giftingu í ágúst. Rikard, einn af ferðamönnunum frá síðasta sumri, er að fara að gifta sig og okkur var boðið. Þau, Rikard og Helen, eru búin að vera rosa næs við okkur. Hjálpa okkur að flytja, lána okkur bíl svo við getum ferðast um Skán og suður Svíþjóð, og þvíumlíkt. Rosa næs. Við eigum varla orð. Búin að reynast okkur vel.
Við erum á leiðinni á klakann í ágúst. Elín fer 12.ágúst og verður í 8 daga. Mexíkósk vinkona hennar úr skólanum ætlar að skella sér með henni og vera í 2-3 daga. Guðbjörg heldur upp á 30 ára afmæli sitt 12.ágúst og þar sem við vorum að fara á annað borð ákvað Elín að vera aðeins lengur en ég. Ég kem ekki fyrr en 16.ágúst og svo förum við Elín samfó tilbaka 20.ágúst.
Elín er annars bara að vinna á labbinu í skólanum og ég í mínu í Burlöv Center. Kann voðalega vel við mig þar. Góður mórall og góð stemning í vinnunni.
Svo þurfum við að fara að ákveða okkur hvað við viljum gera. Flytja heim, áfram í Svíþjóð, flytja til tunglsins? Allt hægt. Sjáum til hvað setur.
Það mun ekki líða eins langur tími fram á næsta blogg.
Góðar stundir.