Frankfurt-Am-Main........Lítil ferðasaga
Jæja, ég var s.s í Frankfurt síðustu helgi. Helvíti gaman. Gummi tók vel á móti mér og hérna er svona update á því helsta sem við gerðum.
Föstudagur:Gummi tók á móti mér á flugvellinum (sem nóta bene er bara stór) og við tókum lest inn í Frankfurt. Ég var reyndar 1 tíma á eftir áætlun þar sem flugvél nauðlenti á Kastrup þegar við vorum við það að fara í loftið. Við héldum beinustu leið niður í miðbæ og settumst inn á írskan pöbb. KARÓKÍKVÖLD!!! Stórglæsilegt. Við sátum bara og kjöftuðum. Við vorum spurðir hvort við værum Lettar!!! 14 Gunniess=4000 isk.
Laugardagur:Vöknuðum seint, enda smá þynnka kannski í mönnum. Fórum í bæinn og Gummi sýndi mér borgina. Frábær borg. Rosa flott og við fórum uppá Evrópubankann og þar var frábært útsýni yfir Frankfurt og nágrenni. Annars vorum við bara á röltinu eiginlega allan tíman. Fórum svo bara heim, átum pizzu og fórum svo í bæjarhluta sem heitir Sachsenhausen. Gamall bæjarhluti með fullt af flottum pöbbum og svona. Rosaflott. Fórum svo bara snemma heim.
Sunnudagur:Eintracht-HSV. Frábær nýji völlurinn hjá Eintracht. Það verður spilað á honum í sumar og það er greinilega ekkert til sparað. Við vorum með VIP miða. Svo mikið wurzt sem við gátum étið og svo mikill bjór sem við gátum drukkið. Við fórum þarna með einum sem heitir Tom..vinur Gumma...hann var á geðveikum Audi og við kynntumst þýskri umferðaröngþveiti. Rosalega fínn leikur. Endaði 1-2 fyrir HSV. Þegar maðru er búinn að fara svona VIP á leik þá er maður búinn að setja svo háan standard að allt annað er bara fyrir verkamenn og atvinnuleysingja!
Mánudagur:Vaknað snemma. Gummi þurfti að fara til USA í hádeginu svo ég var bara einn á röltinu til ca 17:00. Dúllaði mér bara allan daginn, gekk út um allt og tók einhverjar myndir. Þær eru ennþá í framköllun en það mun örugglega eitthvað birtast hérna í framtíðinni.
Kom heim til Elínar minnar seint um kvöld. Alltaf frábært að koma heim.
Þats it. Ef þið hafið spurningar þá er hægt að nálgast mig á e-maili! :)
Íbúðarleit
Við fórum mjög góða ferð til Lundar i gær að skoða íbúðir. Fyrst skoðuðum við eina 45 fm og leist okkur betur á hana en við þorðum að vona, hun var ágætlega skipulögð, með svölum og innan við 5 mín gangur í miðbæ Lund. Næta sem við skoðuðum var 60 fm íbúð í miðjum Lundi nákvæmlega þar sem hjartað slær. Þetta var brilljant íbúð og erum við mest skotin í henni. Kallinn þar ætlar að koma að skoða okkar um helgina - við bíðum spennt að sjá hvernig honum líkar okkar - Ef Guðjón fær sig færðan í Lund þá er hann inna við 2 mínútur að labba í vinnunna og um 20 mín gangur fyrir mig í skólann. Að lokum skoðuðum við eina 65 fm í úthverfi Lundar og var hún eiginlega síst þrátt fyrir sætan garð eða verönd sem fylgir íbúðinni.
Ég var að koma frá því að halda fyrsta fyrirlesturinn af þremur sem ég þarf að halda þessar vikurnar. Við vorum 2 með fyrirlesturinn sem gekk mjög vel en við töluðum víst aðeins of lengi, vorum í hálftíma með spurningum (sem reyndar þurfti að stoppa vegna tímaleysis) í stað 15 og að okkar þökk er búið að riðla dagskránni um næstum hálftíma ;) Ég meina hver vill ekki taka sér tíma í að hlusta á hið bráðskemmtilega efni: Metabolic engineering of Clostridium acetobutylicum for the industrial production of 1,3-propanediol ;)
Ég þarf svo að fara á eftir að hlusta á 3 aðra hópa flytja sitt erindi og verð ég þá í spurningaliðinu og verðum við svo þáttakendur í því að gefa þeim einkunn :) hehe
Konudagurinn og klukk
Ég var að komast að því í dag þegar ég rúllaði í gegnum Morgunblaðið að það er
Konudagurinn í dag. Það er nokkuð ljóst að ég skoðaði ekki dagatalið nógu vel þegar ég gaf Guðjóni "leyfi" til að fara til Germany ;) Pilturinn yfirgaf Malmö á föstudaginn til þess að heimsækja Gumma og horfa á bolta+bjór og kemur aftur á mánudag. Ég er því ein að tjilla hérna á Grænugötu um helgina. Ég fór með krökkunum úr skólanum í naition í Lundi á föstudaginn, "notaði tækifærið" þar sem allar nation-irnar eru aðeins fyrir stúdenta. Annars hef ég verið að læra, enda kominn tími til að spíta í lófana þar sem eru aðeins 3 vikur í próf og auk þess að eiga eftir að renna yfir efnið þá á ég eftir að skila 2 skýrlsum og halda 3 fyrirlestra.
Það er aðeins að birta yfir íbúðarleitinni í
Lundi og erum við að fara að skoða 3 íbúðir á þriðjudaginn. Tvær þeirra eru í miðbæ Ludnar og ein aðeins fyrir utan miðbæinn en þar sem Lundur er svo lítill bær þá þýðir það að það tekur ca 10 mín með strætó frá lestarstöðinni eða um hálftíma gangur ;)
Belle and Sebastian eru að koma og spila í Köben 19. maí og er ég ekkert smá spennt að fara og sjá þetta margumtalaða frábæra tónleikaband. Nýji diskurinn hljómar mjög vel :)
Svo er það Depeche Mode næstu helgi.....vúhúhúúú
....og svo var ég víst klukkuð svo hér kemur það....
4 vinnur sem ég hef unnið um ævina:- Klinik Schönsiht, Germany
- Breiðholtslaug
- RF
- Sýni
4 bíómyndir sem ég get horft á aftur og aftur:- Með allt á hreinu
- Kill Bill
- Amelie
- La Vita é Bella
4 staðir em ég hef búið á:- Vesturberg
- Skarphéðinsgata
- Stangarholt
- Englandsvej
4 þættir sem ég fíla:- Lost
- Desperate Housewifes
- Simpsons
- Fóstbræður
4 staðir sem ég hef heimsótt í fríum:- Kópasker
- Havana
- Kuala Lumpur
- Kaupmannahöfn
4 síður sem ég skoða daglega: (fyrir utan blogg) - leiknir.is
- mbl.is
- lth.se
- hotmail.com
Fernt matarkyns sem ég held upp á:- Ís
- Kaffi
- Kanilsnúðar
- Lúða
4 staðir sem ég vildi helst vera á núna:- Barcelona
- Ástralía
- Hjá Íslenskri Getspá að taka á móti lottó-vinningnum langþráða
- Í Frankfurt með Guðjóni
4 bloggarar sem ég klukka:Í tilefni konudagsins verður það bara stelpu-klukk, svo Frk Vesturfari, Svanhvít, Margrét Vilborg og Sóla gjörið svo vel :) - KLUKK -
Góðar stundir :)
Eitthvað klukk!
Hjalti var eitthvað að "klukka mig". Þá á maður víst að svara einhverjum spurningum. Ég hef reyndar aldrei svarað svona klukki áður. En jæja, einhvern tíma eitthvað fyrst.
4 vinnur sem ég hef unnið um ævina:-Júmbó samlokur
-Garðinum á Landsspítalanum
-Þorri Þorskur!!! (kom meira að segja í Stundina okkar!!!)
-Skrifstofur Ríkisspítalana. Í bókhaldinu
4 bíómyndir sem ég get horft á aftur og aftur:-Sódóma
-The Big Lebowsky
-The Hudsucker Proxy (uppáhalds)
-The Emperors New Groove
4 staðir em ég hef búið á:-Antibes í Frakklandi
-Skarphéðinsgata 12
-Dalslandsgade 8, Kbh (úps sorry Linda)
-Grönegatan 2, Malmö
4 þættir sem ég fíla:-Lost
-CSI
-Family Guy
-Friends
4 staðir sem ég hef heimsótt í fríum:-Ibiza
-Ísafjörður
-Aðaldalur (best í heimi)
-London
4 síður sem ég skoða daglega: (fyrir utan blogg)-mbl.is
-fotbolti.net
-liverpoolfc.tv
-visir.is
Fernt matarkyns sem ég held upp á:-Kjúlli. Bara hvítur með tómatsósu og fröllum
-Maltbrauð með kæfu (og helst kæfuna hennar Kiddýar frænku)
-Guiness bjór!!!(nánast matarkyns)
-Hangikjöt og allt með því
4 staðir sem ég vildi helst vera á núna:-Frakkland
-Anfield Road, Liverpool
-Tónleikum með Louise Attaque
-Í heimsókn hjá Karl Gustav!!!
4 bloggarar sem ég klukka:Oddur
Elín
Solla
Viggatigga
Helgi
Föstudagskvöld: Hangið heima. Popp og kók og Notting Hill. Algjör kelling.
Laugardagur: Oddur og Kristín ætla að koma yfir. Við ætlum til Lundar. Ég ætla að kíkja á Synoptik í Lundi. Bossinn var nefnilega að spyrja hvort ég vildi vinna þar frekar en í Burlöv/Triangeln þegar ég væri fluttur. Ég sagðist vilja sjá búðina áður. Svo er þetta bara ferð til að kíkja á mannlífið í Lundi. Aldrei farið þangað svona bara til að kíkja á bæinn og labba um og svona. Oddur og Kristín ætla s.s. með. Í kvöld verður bara slappað af. Ætli það verði ekki bara popp og kók aftur. Kannski með smá twist. Kannski ís. Hver veit.
Sunnudagur: Golfsýning í Malmö. Ég og Ricard erum að fara að kíkja á það nýjasta sem golfíþróttin hefur upp á að bjóða. Það verður fínt. S.s róleg helgi og afslöppun. Enda er ég í fríi. Elín kemur svo heim um kvöldið frá Djörmaní.
Sæl og blessuð.
Já, enn eitt bloggið frá Skáni!! Elín lagði af stað í leiðangur og lipur er sannarlega hennar fótgangur, takturinn fannst henni eitthvað tómlegur svo hún tók sér Guðbjörgu til viðbótar! Þær lögðu af stað til Leipzig, Germany í dag. Verða komnar á leiðarenda einhvern tíma í kvöld. Guðbjörg kom til okkar á þriðjudaginn en Elín er meira eða minna bara búin að vera í skólanum síðan hún kom. Það eru einhverjir pokar frá HM og skóbúðum hérna á gólfinu svo mér sýnist Guðbjörg ekkert hafa leiðst á meðan.
Annars vorum við næstum því flutt til Lundar. Konan sem ætlaði að skifta við okkur hætti við á síðustu stundu. Alveg leiðinleg. Svo við þurfum að halda áfram að leita.
Stelpurnar í Germany....ég er nú bara í hálfgerðu fríi hérna!
ps....frábær komment á síðustu færslu. Glæsilegt!
Alive and kickin' !!!
Nei, þetta er miskilningur, við erum ekki dauð!!!Það er reyndar orðið frekar langt síðan við blogguðum síðast en nú verður bætt úr því.
Við erum hress og kát og líður jättebra í Svíþjóð. Elín er á fullu í skólanum eins og venjulega, og ég er alltaf að vinna. Enn á 2 stöðum. Það er frekar leiðinlegt að vera á 2 stöðum en það reddast alveg. Var reyndar vanur að vinna á 3-4 stöðum á Íslandi, og það helst í einu. Svo ég lifi þetta alveg af. Við erum reyndar að drepast úr fýlu yfir þessum hlandbolta. Ekkert smá pínlegt að tapa fyrir nojorunum. Alveg mis. Við vorum diggir stuðningsmenn landsliðsins og erum ekki sátt. (prumpu Danir.....alveg pirrandi).
Við erum bæði að fara til útlanda í febrúar. Elín er að fara í næstu viku til Leipzig í 30 ára afmæli Ellenar vinkonu sinnar. Guðbjörg Þorsteins, vinkona Elínar, kemur til okkkar í heimsókn næsta þriðjudag og þær stöllurnar, auk Öglu, leggja svo Þýskaland undir sig á fimmtudag. Ég er svo að fara helgina eftir til Gumma í Frankfurt. Bolti og bjór.
Oddur flutti til Köben í síðustu viku. Hann og Pétur vinur hans eru búnir að hefja sambúð á Eyrnasundskleppi. Við fórum í heimsókn síðasta föstudag og Oddur kom svo til okkar á laugardag.
Elín gerðist partýsmellur um daginn þegar hún kom í partý með HÁKARL!!! Fólk fékk að smakka á þessu..............tómt rugl. Ég fór næstum því að æla. Næsta laugardag er svo fólk að koma í mat til okkar. Elín kom líka með hangikjöt, harðfisk og önnur góðgæti með sér frá Íslandi og nú verður þetta borið ofan í Mexíkana, Norðmann og Pólverja! Gott kombó. Vona að Pólverjarnir komi með Prins Póló.....nammi namm!!
Að lokum má nefna það að við erum farin að líta í kringum okkur að nýrri íbúð. Ætlum hugsanlega að flytja til Lundar. Meira um það síðar.
Ps. Þrátt fyrir ítrekaðar áskoranir, þá verða ekki birtar teiknimyndir af Múhammeð á þessari síðu.