sunnudagur, júní 18, 2006

Langt síðan síðasta blogg

Komið sæl og blessuð. Nú ætlum við að blogga, svona í tilefni dagsins. Ég er kominn í sumarfrí og á morgun förum við til Parísar. Við ætlum reyndar til Köben í dag, sunnudag, því flugið er svo snemma á mánudagsmorgninum að við myndum þurfa að vakna ótrúlega snemma ef við ætluðum að ferðast alla leið frá Lundi fyrst. Munum gista í íbúð Odds og Kristínar. Planið er s.s. París í eina viku og 5 dagar í Lúxembourg hjá Sigþóri. Sjáum til hvort við förum til Bruxelles eða Frankfurt. Við munum allavega fljúga heim frá Frankfurt.

Annars erum við búin að koma okkur vel fyrir í Lundi. Hér er fínt að vera, ekki spurning um það. Lítill og kósí bær. Reyndar frekar tómur eins og er því skólarnir eru búnir og 50% af öllum sem búa hérna eru stúdentar. Bara draugabær eins og er.

Við vorum með litla afmælisveislu fyrir Elínu síðasta sunnudag. Eiki, Vigdís og Sóldís, Heiða, Oddur, Agla og Anna Lind komu í heimsókn og Elín var búin að baka. Meira að segja margar sortir. Bara eins og í alvörum afmælum!! :) Elín á svo "alvöru" afmæli á fimmtudaginn (22.júní) og skora ég á alla að senda henni sms. Já, eða hringja. Við verðum í París sko....... að verzla í Yves Saint Laurent. Eða þannig.

Ég er farinn að vinna 100% í Burlöv Center. Nú er ég ekki lengur á 2 stöðum. Kann betur við þetta. Annars var framið vopnað rání búðinni beint á móti okkur og við fengum rán í beinni bara eins og í bíó. Þrír gæjar hlupu inní úrabúðina á móti með hettur á höfðinu með byssur. Einn hljóp upp að búðarborðinu og miðaði byssu á afgreiðslukonuna meðan 2 aðrir tæmdu búðina. Þeir voru inn og út á 1-2 mínútum. Þetta var rosalegt. Við horfðum á allt þetta gerast. Svo kom löggan og var bara eins og í CSI. Taka sýni og fingraför og svona. Þetta var rosalegt. Allt stoppaði á meðan þeir tæmdu búðina. Allir horfðu bara á. Gátu svo sem lítið gert og úr er varla eitthvað sem maður vill láta drepa sig fyrir. Myndi svona gerast á litla Íslandi.

HM byrjað. 3 leikir á dag. Bara veisla. Elín ánægð! :) Allez les Blues.

Jæja, við erum farin í frí í 2 vikur. Lifið heil.


Ps. Hvaða Svíagrýla?

6 Comments:

At þriðjudagur, júní 20, 2006, Blogger ellen said...

Gaman að fá loksins blogg... góða skemmtun í París, þetta hljómar mjög vel. Farið varlega í glæpaborginni!

 
At þriðjudagur, júní 20, 2006, Anonymous Nafnlaus said...

blessaður gaupi litli;) Vá maður er ekkert búin að heyra frá þer endlaust lengi!!! Hvað á það að þýða;) En hvað segiru hvða er msnið þitt?? Knús frá öllu í duty Kv Anna Þóra

 
At fimmtudagur, júní 22, 2006, Blogger ellen said...

TIL HAMINGJU MEÐ AFMÆLIÐ Í DAG ELSKU ELÍN :):):) Hafðu það sem allra best.

 
At fimmtudagur, júní 22, 2006, Anonymous Nafnlaus said...

Sæl elsku Elín mín og innilegar hamingjuóskir með daginn. Vonandi áttu yndislegan dag.

Kossar og knús :o#

 
At fimmtudagur, júní 22, 2006, Anonymous Nafnlaus said...

Elsku Elín,
innilega til hamingju með daginn! Það hljómar nú ekki illa að vera í París á þrítugsafmælinu sínu :) Kannski við sjáumst eitthvað á Íslandinu góða í sumar? Bestu kveðjur,
Auður Rán.

 
At mánudagur, júlí 03, 2006, Blogger ellen said...

Eruð þið komin heim? Fær maður ekki fréttir....?

 

Skrifa ummæli

<< Home