þriðjudagur, apríl 25, 2006

Það styttist í að þessi blessuðu íbúðarmál okkar verði frágengin. Við erum reyndar enn að bíða eftir leigusalanum okkar að samþykkja gæjana sem hafa sýnt íbúðinni okkar áhuga, það ætti ekki að vera nein fyrirstaða þar. Við fórum svo í gær að skoða íbúðina okkar í Lund. Þetta lítur allt mjög vel út. Íbúðin er tæpir 60 fm og ágætlega skipulögð - björt, með svölum, baðkari, skápaherbergi innangengt úr svefnherberginu og auka herbergi. Svo er einn skemmtilegasti parturinn eftir: pakka niður og flytja draslið :) Ef þið hafið áhuga og eigið leið hjá endilega komið og takið þátt í ánægjunni :)

Þrátt fyrir að páskarnir séu löngu löngu löngu búnir er ég enn í páskafríi. Það eru reyndar bara 2 dagar eftir, en annars fer þetta að vera gott af fríi....maður má ekki alveg missa taktinn í lærdómnum. Ég tók annars eitt próf í síðustu viku, svona til að halda mér við efnið. Gekk bara ágætlega. Núna fer svo í gang stanslaus lærdómur, því framundan eru verkefnaskil, skýrslur, fyrirlestrar og svo próf í lok maí.....og ef allt gengur vel þá eru þetta síðustu prófin sem ég tek, ever... (..ja, já held ég alla vega... ;) )

Það er komið íslenskt sumarveður hérna í Malmö (það er enn vetraveður í Köben!!) og er maður alveg kominn í sumarstemninguna, langar út að grilla og í útileiki....

...farin út á svalir með bækurnar....

3 Comments:

At þriðjudagur, apríl 25, 2006, Blogger Lilja said...

hahaha..já það er ótrúlega langt þetta páskafrí þitt. ;). Bara aaaðeins meiri táfýla -tvo daga í viðbót :D.

 
At þriðjudagur, apríl 25, 2006, Anonymous Nafnlaus said...

hei það var nú gott afmælisveður sem maður fékk í dag!!!(Enda er maður búin að vera góður í ár) Ég myndi ekki kalla þetta vetrarveður en ég er líka skíðamanneskja hehe.... Ætlaði bara aðeins að heilsa ykkur kveðja Kristín Edda (afmælisbarn)

 
At miðvikudagur, apríl 26, 2006, Blogger ellen said...

Er hægt að sjá myndir af íbúðinni? til hamingju með hana :) gangi þér vel í prófa-verkefnaskilatörn. Þetta er erfitt í góða veðrinu, sólsyster.

 

Skrifa ummæli

<< Home