Enn tölva til sölu - bíðst hæstbjóðanda :)
Það er alveg rétt....ég get kastað einu bloggi héðan úr skólanum...já á meðan ég er hér, en annars er ég á leiðinni í 3 vikna páskafrí eftir þessa viku og á ekki að mæta hér aftur fyrr en 27. apríl. Ekki slæmt það. Það er svo sem af nógu að taka í lærdómnum sem mætti vinna á þessum tíma - og það hljómar enn meira freistandi þegar tölvuskrattinn heima er bilaður!! :)Í síðustu viku kom Guðbjörg M til okkar á Grænugötu og var það mjög ánægjulegt að sjá gamalkunnugt andlit frá Íslandi. Hún var hér á ferðinni með mömmu sinni og frænku að heimsækja aðra frænku sína nú og svo okkur hér. Við þökkum henni kærlega fyrir innlitið og páskaeggið sem hún kom með :) ummm...
...og talandi um góðgæti þá fengum við meira íslenskt gúmmulaði um síðustu helgi þegar Ingi og Guðrún foreldrar hans Guðjóns komu til Danmerkur. Takk fyrir það :) Við trilluðum uppá flugvöll til að sækja þau ásamt Oddi...en svo þegar bólaði ekkert á foreldrunum fórum við að naga okkur í handabökin yfir því að þetta væri kannski bara aprílgabb - og það ekki af verri endanum. Við önduðum því öll léttar þegar þau komu labbandi út úr tollinum :) Í dag er svo von á þeim yfir sundið og það er komið að því að leiða þau í sannleikann um ágæti Malmö, svo er fyrirhuguð ferð til Lundar á föstudag og svo á að bruna í dagsferð á laugardag til Jönköping til bróður hans Inga.
Jæja kominn tími á skólann...ég er á leiðinni í heimsókn í fyrirtæki hér í Lundi - aldrei að vita nema að það komi eitthvað spennandi út úr því :)
0 Comments:
Skrifa ummæli
<< Home