Konudagurinn og klukk
Ég var að komast að því í dag þegar ég rúllaði í gegnum Morgunblaðið að það er Konudagurinn í dag. Það er nokkuð ljóst að ég skoðaði ekki dagatalið nógu vel þegar ég gaf Guðjóni "leyfi" til að fara til Germany ;) Pilturinn yfirgaf Malmö á föstudaginn til þess að heimsækja Gumma og horfa á bolta+bjór og kemur aftur á mánudag. Ég er því ein að tjilla hérna á Grænugötu um helgina. Ég fór með krökkunum úr skólanum í naition í Lundi á föstudaginn, "notaði tækifærið" þar sem allar nation-irnar eru aðeins fyrir stúdenta. Annars hef ég verið að læra, enda kominn tími til að spíta í lófana þar sem eru aðeins 3 vikur í próf og auk þess að eiga eftir að renna yfir efnið þá á ég eftir að skila 2 skýrlsum og halda 3 fyrirlestra.Það er aðeins að birta yfir íbúðarleitinni í Lundi og erum við að fara að skoða 3 íbúðir á þriðjudaginn. Tvær þeirra eru í miðbæ Ludnar og ein aðeins fyrir utan miðbæinn en þar sem Lundur er svo lítill bær þá þýðir það að það tekur ca 10 mín með strætó frá lestarstöðinni eða um hálftíma gangur ;)
Belle and Sebastian eru að koma og spila í Köben 19. maí og er ég ekkert smá spennt að fara og sjá þetta margumtalaða frábæra tónleikaband. Nýji diskurinn hljómar mjög vel :)
Svo er það Depeche Mode næstu helgi.....vúhúhúúú
....og svo var ég víst klukkuð svo hér kemur það....
4 vinnur sem ég hef unnið um ævina:
- Klinik Schönsiht, Germany
- Breiðholtslaug
- RF
- Sýni
4 bíómyndir sem ég get horft á aftur og aftur:
- Með allt á hreinu
- Kill Bill
- Amelie
- La Vita é Bella
4 staðir em ég hef búið á:
- Vesturberg
- Skarphéðinsgata
- Stangarholt
- Englandsvej
4 þættir sem ég fíla:
- Lost
- Desperate Housewifes
- Simpsons
- Fóstbræður
4 staðir sem ég hef heimsótt í fríum:
- Kópasker
- Havana
- Kuala Lumpur
- Kaupmannahöfn
4 síður sem ég skoða daglega: (fyrir utan blogg)
- leiknir.is
- mbl.is
- lth.se
- hotmail.com
Fernt matarkyns sem ég held upp á:
- Ís
- Kaffi
- Kanilsnúðar
- Lúða
4 staðir sem ég vildi helst vera á núna:
- Barcelona
- Ástralía
- Hjá Íslenskri Getspá að taka á móti lottó-vinningnum langþráða
- Í Frankfurt með Guðjóni
4 bloggarar sem ég klukka:
Í tilefni konudagsins verður það bara stelpu-klukk, svo Frk Vesturfari, Svanhvít, Margrét Vilborg og Sóla gjörið svo vel :) - KLUKK -
Góðar stundir :)
2 Comments:
sælar...Jæja helduru að ég sé ekki buin að panta far út, ég kem 29 mars og verð til 2 apríl :) Hlakka mikið til að sjá ykkur, var að reyna ná í þig..reyni aftur í kvöld kv Gm
úúúúúú glæsilegt :):) hlakka ekkert smá til að fá þig :) Ég skrapp til Köben í kvöld, en við heyrumst betur á morgun ;)
víííí
Skrifa ummæli
<< Home