fimmtudagur, febrúar 09, 2006

Sæl og blessuð.

Já, enn eitt bloggið frá Skáni!! Elín lagði af stað í leiðangur og lipur er sannarlega hennar fótgangur, takturinn fannst henni eitthvað tómlegur svo hún tók sér Guðbjörgu til viðbótar! Þær lögðu af stað til Leipzig, Germany í dag. Verða komnar á leiðarenda einhvern tíma í kvöld. Guðbjörg kom til okkar á þriðjudaginn en Elín er meira eða minna bara búin að vera í skólanum síðan hún kom. Það eru einhverjir pokar frá HM og skóbúðum hérna á gólfinu svo mér sýnist Guðbjörg ekkert hafa leiðst á meðan.

Annars vorum við næstum því flutt til Lundar. Konan sem ætlaði að skifta við okkur hætti við á síðustu stundu. Alveg leiðinleg. Svo við þurfum að halda áfram að leita.

Stelpurnar í Germany....ég er nú bara í hálfgerðu fríi hérna!

ps....frábær komment á síðustu færslu. Glæsilegt!

1 Comments:

At föstudagur, febrúar 10, 2006, Anonymous Nafnlaus said...

Eftir að ég las þessa fæslu hefur lagið um fílin nellý verið í hausnum á mér! "Fíllin hún Nellý hún lagði á stað í frumskóginn vildi flytja......." Þetta er ekkert skot á þig Elín mín. Þetta er Gauja að kenna!!!!!!!
kv. Oddur

 

Skrifa ummæli

<< Home