fimmtudagur, febrúar 23, 2006

Frankfurt-Am-Main........Lítil ferðasaga

Jæja, ég var s.s í Frankfurt síðustu helgi. Helvíti gaman. Gummi tók vel á móti mér og hérna er svona update á því helsta sem við gerðum.

Föstudagur:
Gummi tók á móti mér á flugvellinum (sem nóta bene er bara stór) og við tókum lest inn í Frankfurt. Ég var reyndar 1 tíma á eftir áætlun þar sem flugvél nauðlenti á Kastrup þegar við vorum við það að fara í loftið. Við héldum beinustu leið niður í miðbæ og settumst inn á írskan pöbb. KARÓKÍKVÖLD!!! Stórglæsilegt. Við sátum bara og kjöftuðum. Við vorum spurðir hvort við værum Lettar!!! 14 Gunniess=4000 isk.

Laugardagur:
Vöknuðum seint, enda smá þynnka kannski í mönnum. Fórum í bæinn og Gummi sýndi mér borgina. Frábær borg. Rosa flott og við fórum uppá Evrópubankann og þar var frábært útsýni yfir Frankfurt og nágrenni. Annars vorum við bara á röltinu eiginlega allan tíman. Fórum svo bara heim, átum pizzu og fórum svo í bæjarhluta sem heitir Sachsenhausen. Gamall bæjarhluti með fullt af flottum pöbbum og svona. Rosaflott. Fórum svo bara snemma heim.

Sunnudagur:
Eintracht-HSV. Frábær nýji völlurinn hjá Eintracht. Það verður spilað á honum í sumar og það er greinilega ekkert til sparað. Við vorum með VIP miða. Svo mikið wurzt sem við gátum étið og svo mikill bjór sem við gátum drukkið. Við fórum þarna með einum sem heitir Tom..vinur Gumma...hann var á geðveikum Audi og við kynntumst þýskri umferðaröngþveiti. Rosalega fínn leikur. Endaði 1-2 fyrir HSV. Þegar maðru er búinn að fara svona VIP á leik þá er maður búinn að setja svo háan standard að allt annað er bara fyrir verkamenn og atvinnuleysingja!

Mánudagur:
Vaknað snemma. Gummi þurfti að fara til USA í hádeginu svo ég var bara einn á röltinu til ca 17:00. Dúllaði mér bara allan daginn, gekk út um allt og tók einhverjar myndir. Þær eru ennþá í framköllun en það mun örugglega eitthvað birtast hérna í framtíðinni.
Kom heim til Elínar minnar seint um kvöld. Alltaf frábært að koma heim.

Þats it. Ef þið hafið spurningar þá er hægt að nálgast mig á e-maili! :)

6 Comments:

At fimmtudagur, febrúar 23, 2006, Anonymous Nafnlaus said...

Við sitjum hér, mjög stoltar mömmur, við sína hverja tölvuna að lesa litla sögu um drengina okkar á ferð í Frankfurt. Þið tveir eruð meiriháttar. Haldið áfram með vinskapinn á sömu braut

 
At föstudagur, febrúar 24, 2006, Blogger ellen said...

Go go Þýskaland, besta land í heimi, hohohoho. En Elín, passwordið er það sama og ég hafði fyrir síðuna sjálfa, ekki albúmið. Þannig að þú kemst inn í nýja albúmið á því! ég hélt að það væri það sama og fyrir hitt albúmið, en svo mundi ég að það var ekki svo.

 
At föstudagur, febrúar 24, 2006, Anonymous Nafnlaus said...

Hvernig eru menn í maganum eftir 14 Guinessa ??..
Maður er bara saddur eftir 1..
Verður Gaupi núna alltaf bara með Björgúlfi í VIP stúkunni og kaffinu í hálfleik á KR vellinum í sumar ???

kv.Svenni frændi

 
At föstudagur, febrúar 24, 2006, Blogger Guðjón said...

Ég á KR-vellinum í sumar. Ertu rugladur. Ég er vinsamlegast bedin um ad halda mig langt frá Frostaskjóli.

 
At föstudagur, febrúar 24, 2006, Anonymous Nafnlaus said...

Alveg rétt.. Hvernig læt ég. Var búinn að gleyma "the curse of the guðjón".
Geturðu ekki farið að halda með Chelsea eða mætt á leik hjá þeim. Þeim gengur aðeins of vel. Vantar eitthvað til að þeim fari að ganga illa.
Hversu oft hefur KR næstum fallið þegar þú er nálægt og hvar hefur þú verið þegar KR hefur unnið bikar ??
I rest my case

Kv. Svenni frændi

 
At laugardagur, febrúar 25, 2006, Blogger Inga said...

Hæ hæ, ég fór aðeins forvitnast og eins og sönnum tölvulúða sæmir sló ég inn "Guðjón AND Elín" í Google og þar eruð þið efst á lista, enda með eindæmum merkilegt fólk!!! Vona að þið séuð hress og kát!

Kveðja af klakanum,
Inga Steinunn

 

Skrifa ummæli

<< Home