Íbúðarleit
Við fórum mjög góða ferð til Lundar i gær að skoða íbúðir. Fyrst skoðuðum við eina 45 fm og leist okkur betur á hana en við þorðum að vona, hun var ágætlega skipulögð, með svölum og innan við 5 mín gangur í miðbæ Lund. Næta sem við skoðuðum var 60 fm íbúð í miðjum Lundi nákvæmlega þar sem hjartað slær. Þetta var brilljant íbúð og erum við mest skotin í henni. Kallinn þar ætlar að koma að skoða okkar um helgina - við bíðum spennt að sjá hvernig honum líkar okkar - Ef Guðjón fær sig færðan í Lund þá er hann inna við 2 mínútur að labba í vinnunna og um 20 mín gangur fyrir mig í skólann. Að lokum skoðuðum við eina 65 fm í úthverfi Lundar og var hún eiginlega síst þrátt fyrir sætan garð eða verönd sem fylgir íbúðinni.Ég var að koma frá því að halda fyrsta fyrirlesturinn af þremur sem ég þarf að halda þessar vikurnar. Við vorum 2 með fyrirlesturinn sem gekk mjög vel en við töluðum víst aðeins of lengi, vorum í hálftíma með spurningum (sem reyndar þurfti að stoppa vegna tímaleysis) í stað 15 og að okkar þökk er búið að riðla dagskránni um næstum hálftíma ;) Ég meina hver vill ekki taka sér tíma í að hlusta á hið bráðskemmtilega efni: Metabolic engineering of Clostridium acetobutylicum for the industrial production of 1,3-propanediol ;)
Ég þarf svo að fara á eftir að hlusta á 3 aðra hópa flytja sitt erindi og verð ég þá í spurningaliðinu og verðum við svo þáttakendur í því að gefa þeim einkunn :) hehe
1 Comments:
hlakka til að heyra meira af íbúðarmálum... hljómar vel.
Skrifa ummæli
<< Home