Páskar og svoleiðis
Jæja, búinn að heimta Elínu aftur. Kom á Páskadag frá Íslandi. Eftir henni komu svo góðir gestir á Grænugötu. Oddur og Kristín, Eiríkur og Vigdís og Sóldís. Þau voru hérna í Páskamatnum. Ekta íslenskt lamb. Nammi namm...a la Elín. :) Við héngum svo hérna fram eftir kvöldi og sötruðum á bjór og rauðvíni. Sólbakkafjölskyldan ákvað að gista hérna svo við Elín létum eftir okkur rúmið okkar. Við erum búin að vera svolítið í því þennan mánuð að gefa eftir rúmið okkar. Búið að vera mikið um gestagang. Fyrst Vesturberg, svo Austurströnd og nú Sólbakkinn. Guðbjörg M heiðraði okkur lika með nærveru sinni en hún fékk þó ekki rúmið.Var hérna s.s Páskavikuna einn í kofanum. Var reyndar orðinn svolítið leiður á því á skírdag. Var bara á kojufyllerí alla helgina. Hehe. Nei, nei.
Elín er að fara í próf á föstudaginn svo nú er hún bara læst inni í eldhúsi að lesa. Búin að fjarlægja klukkuna af veggnum og koma henni fyrir í kompunni. Hún er svo að fara í afmæli í Dk á laugardaginn hjá Vigdísi (húsfreyju að Sólbakka).
Annars er ég að fara að sækja um inngöngu í Háskólan í Lundi. Ætla að fara í kvöldtíma í frönsku. Ætla að sækja um það. Spænsku til vara. Ég er reyndar orðinn of seinn að sækja um en ég hringdi og sögðu að ég kæmist inn ef kúrsarnir eru ekki fullsetnir. Svo við sjáum til hvað gerist. Hvort ég komist inn eða ekki. Spennandi.
Annars er allt bara í góðu hérna á Grænugötu. Við bíðum bara eftir að fá að flytja. Kl. 12. 1.júní fáum við lyklana að nýju íbúðinni í Lundi. (Oddur, tilbúinn að koma og hjálpa!) Það verður ljúft. Miklu styttra í allt sem við erum að gera.
Látum þetta nægja í bili.
Lifið heil.
Ps.
Það er fallegt í Jönköping.
1 Comments:
Það er spurning hvað þú borgar mikið?
kv. Oddur
Skrifa ummæli
<< Home