mánudagur, apríl 10, 2006

Mætt á skerið

Ég lagði land undir fót því í dag þrammaði yfir til Kaupmannahafnar til að taka flug hingað yfir á skerið góða :) Landið tók vel á móti mér, með roooki og rigningu eins og það gerist best! Ég ætla að vera hérna fram á sunnudag á Hótel mömmu, það er alveg strax byrjað að dekra við mann :) Ég er búin að panta fisk og með'í í kvöldmatinn...ummm.

Annars eru nýjustu fréttirnar þær að við erum búin að fá tilboð frá stúdentagörðunum í Lundi. Íbúðin er laus 1. júní og því næsta mál á dagskrá að finna leigjendur á Grönegatan sem fyrst....erum nefnilega með 3ja mánaða uppsagna frest og verðum því helst að redda sjálf leigjendum. Þannig að hér með auglýsi ég eftir lysthöfundum að taka yfir íbúðinni okkar :) Guðjón reyndar stendur sig eins og hetja, nú sem fyrr, því hann situr nú sveittur að meila öllum sem eru að óska eftir íbúðum í Malmö...og það eru ófáir búnir að svara nú þegar og eru á leiðinni að skoða. En, svo sjáum við hvað kemur út úr því....

Foreldrar hans Guðjóns fóru heim aftur í gær til Íslands eftir mjög notalegt innlit til okkar á Grænugötu. Eftir trítlið um Malmö og Lund skelltum við okkur til Jönköping sem er lítið eitt norðar í Svíþjóð. Guðjón var ekki lítið spenntur fyrir ferðinni- því Ingi hafði látið eftir honum að leigja Volvo (Guðjón er nefnilega enn að bíða eftir Volvoinum sem átti að fylgja kennitölunni!!). Eftir 3ja tíma akstur með smá vinstri beyju og ófáum trjám, lentum við hjá Óskari og fjölskyldu og áttum við mjög huggulegan dag saman. Við vorum trakteruð út í eitt og þökkum við þeim kærlega fyrir allt :) Jönköping er mjög huggulegur bær, þar vottar fyrir smá landslagi, sem er tilbreyting frá sléttunni á riverunni. Væri til í að koma þar aftur að sumarlagi.

Jæja nú kallar mamma í matinn ;)

Ég er með sama gamla gsm númerið mitt og svo er sjálfvirkur símsvari í Vesturberginu :)

3 Comments:

At mánudagur, apríl 10, 2006, Blogger Guðjón said...

4 að koma að skoða Elín mín. Ég er alveg on fire!!!

 
At þriðjudagur, apríl 11, 2006, Blogger ellen said...

Góða skemmtun á Íslandi mín kæra, mikil öfund í gangi... væri ekkert smá til í að koma í heimsókn líka. Njóttu roksins og rigningarinnar og alls þess góða sem landið hefur upp á að bjóða mín rjóða. Hohohoho.

 
At mánudagur, apríl 17, 2006, Anonymous Nafnlaus said...

sæll frændi og Elín ákvað að láta ykkur vita að fjölskyldan flyst til jótlands í júlí. þá getið þið tekið ykkur huggulegt helgarfrí og grillað með ellu frænku hinni jósku
kveðja ella frænka

 

Skrifa ummæli

<< Home