þriðjudagur, maí 30, 2006

2 dagar eftir á Grænugötu!

Jæja, það líður að fluttningum. Við erum búin að vera að pakka niður þessu allra ómerkilegasta. Svo verður allt sett á fullt hérna annað kvöld. Rikard, sem var á Íslandi í sumar, kemur á fimmtudagsmorguninn og hjálpar okkur. Mætir með kerru og svona. Svo kemur kannski einn úr vinnunni hjá mér og hjálpar okkur. Við þekkjum nefnilega ekkert rosalega mikið af fólki hérna í Malmö sem getur hjálpað okkur. En þetta reddast allt saman. Ég kem svo aftur á föstudag og skila lyklunum og þar með verður Grænagata yfirgefin að eilífu.

Svo vill ég benda öllum á, sem vilja láta taka sig í rassgatið, að hafa samband við Telia.

0 Comments:

Skrifa ummæli

<< Home