sunnudagur, mars 26, 2006

Summertime!

Jæja, kæru íslendingar.

Núna erum við á +2 tímum.

En þrátt fyrir sumartíma...þá snjóar.

miðvikudagur, mars 22, 2006

Lífið, tilveran og íbúðarleit

Heil og sæl öllsömul.
Í síðustu viku voru Halla og Búi í heimsókn bæði í Kaupmannahöfn og Malmö. Enda eiga þau afkvæmi beggja vegna við Öresund. Þau voru hjá Eiríki, Vigdísi og Sóldísi fram yfir helgina og komu svo yfir til Svíþjóðar og gistu hérna hjá okkur í vikutíma. Þau komu með alls konar góðgæti að heiman. Nammi, og mat ýmiskonar og þökkum við kærlega fyrir það. Þau spókuðu sig í góða (en kalda) veðrinu bæði í Malmö og Lundi í fylgd Elínar og þótti Malmö bara hin besta borg. Þau kvöddu svo á laugardaginn. Við fórum yfir til Köben á föstudagskvöldið og borðuðum á Solbakken heima hjá Eríki og Vigdísi með Höllu og Búa. Mjög kósí kvöld. Við komum svo bara yfir með lestinni um nóttina.

Tja, íbúarleit............hvað getur maður sagt!! ÞAÐ ER EKKERT AÐ GERAST!!! Það er vitavonlaust að fá íbúð í þessum blessaða Lundi. Gengur ekki neitt. Þar sem aðeins helmingur heimilisfólksins er stúderandi í Lundi er alveg vonlaust fyrir okkur að fá stúdentaíbúðir.....yrðum bara númer miljón í röðinni. Þannig að við erum búin að stækka svæðið sem við erum að leita að . Nú erum við farin jafnvel að leita að einhverju ódýrara bara í Malmö. Vonum að það beri betri árangur. Því við erum alveg að gefast upp á að finna eitthvað í Lundi. Kannski ef við fáum ódýrari íbúð hérna, þá erum við kannski í betri stöðu til að bítta með einhverjum í Lundi seinna. Hver veit. Sjáum til hvað setur.

Var að lesa á fótbolti.net að Grótta hefði bara unnið Leikni í æfingaleik. Nei, bara vildi nefna það svona. Já, og svo vann Liverpool 7-0 um daginn. Finnst bara svo gaman að minnast á svona. Menn taka það svo bara til sín ef þeir vilja.

fimmtudagur, mars 16, 2006

Noregur og heimsókn

Jæja, langt síðan við blogguðum síðast. Kominn tími á nýtt blogg.

Já, ég var s.s. í Hemsedal í Noregi í síðustu viku. Þvílíkt gaman. Noregur kom þvílíkt sterkur inn. Ég er líka mjög góður á skíðum. Algjör Tomba La Bomba!! Við Mads og Jakob fórum á miðvikudagskvöldinu kl. 20 frá Köben og Tore og Bo tóku á móti okkur í Osló og við keyrðum beinustu leið í Hemsedal. Vorum komnir um 1 leitið um nóttina. Með þessu móti fengum við nefnilega auka dag á skíðum. Í staðinn fyrir að nota fimmtudaginn í ferðalag, var skíðað. Það þarf svo sem ekkert að skrifa neitt rosalega mikið um þessa ferð. Það er hægt að summera þetta nokkurn veginn upp í "bjór-skíði-matur-buzz". Vakað frameftir og vaknað snemma. Álag á manni. En svona er þetta. Á sunnudeginum var ég kominn frekar snemma til Osló aftur og átti ekki flug fyrr en seint um kvöldið svo ég fór í heimsókn til Daníels og fjölskyldu. Haukur kom og sótti mig á brautarstöðinni og við héngum bara í íbúðinni og dúlluðum okkur. Daníel var í hörku stuði og lék á alls oddi. Sniðugur strákur.....svona eins og pabbinn!! (er það ekki Haukur?) Var þar svo í kvöldmat og svona. Svo komu Tore, Mads og Jakob og sóttu mig og við fórum saman út í Gardemoen.

Þegar ég kom aftur, eftir miðnæti á aðfaranótt mánudags, voru Halla og Búi komin í heimsókn og eru þau búin að vera hjá okkur alla vikuna. Þau eru að fara aftur til Köben á morgun og fara svo heim á laugardaginn. Elín mun skrifa meira um vikuna okkar með þeim í næsta bloggi.

Frh.

mánudagur, mars 06, 2006

Elífur vetur!

Já, það er rétt. Hérna er eilífur vetur. Það mun aldrei koma sumar og meðalhiti ársins verður einhvers staðar undir frostmarki!! Maður er alveg að verða geðveikur á þessum snjó. Það hefur ekki verið svona kalt, svona lengi, í manna minnum. Ég fór líka í klippingu á laugardaginn og ég get svarið það....það varð bara kaldara eftir það! Fór reyndar bara og keypti mér húfu.

Elín er búin að vera í stanslausum prófum og hefur hún varla sést á Grænugötu undanfarin misseri. Hefur hangið í Lund og lesið. Þetta fer reyndar að vera búið hjá henni. Hún var í prófi í dag og gekk það bara ágætlega.

Ég er annars að fara til Norge á miðvikudagskvöld. Við Jakob og Mads munum fljúga frá Köben um kvöldið og í Osló tekur Tore á móti okkur. Við munum keyra upp til Hemsedal, sirkus 3 tímar á fimmtudag og verðum þar fram á sunnudag. Það verður massa skíðað á föstudag og laugardag. Við verðum u.þ.b. 10 strákar í hytten og verður eflaust kátt á hjalla.

Íbúðarleitinni var lokið......héldum við. "Truntan" eins og við erum búin að ákeða að kalla hana hætti við á 11.stundu. Sendi emil til mín á laugardagsmorgunin og sagði að hún væri hætt við. Í annað sinn sem hún gerir okkur þetta. Hún er líka búin að gera okkur þetta í síðasta sinn. Hún ætlaði að mæta á laugardaginn með pappírana til að skrifa undir en ákvað þess í staða að hætta við allt saman. Við vorum hætt að leita. Búinn að taka okkur af leitarsíðunum. Algjör trunta s.s. þessi kona. Allavega ekki velkomin á Grænugötu.....það er ljóst.

Annars er von á góðum gestum. Halla og Búi eru að koma í heimsókn. Verða með annan fótinn í Köben hjá Eika og Vigdísi og hinn fótinn hjá okkur. Ég kem reyndar ekki heim fyrr en á sunnudag en ég held þau ætli að byrja í Köben og koma svo til okkar eftir helgi. Svo eru mamma og pabbi að koma hérna í byrjun apríl. 1.apríl í algjöru gabb-stuði!! Það verður s.s mikið um gestagang á Grænugötu næstu vikurnar.

Janus og Tinna voru hjá okkur á laugardagskvöldið. Þau komu hérna um daginn og við fórum út að borða á La Empanada. Fín tex-mex kantína. Ódýrt og gott. Við sátum svo hérna fram eftir og drukkum bjór og rauðvín, og borðuðum osta og snakk. Kósi. Takk fyrir komuna Janus og Tinna.