Sannleikur:
"There is no team in the world that wouldn't like Steven Gerrard, but unfortunately for them there is only one team that has him and that is Liverpool."Kenny Dalglish, 26/4-06
Það styttist í að þessi blessuðu íbúðarmál okkar verði frágengin. Við erum reyndar enn að bíða eftir leigusalanum okkar að samþykkja gæjana sem hafa sýnt íbúðinni okkar áhuga, það ætti ekki að vera nein fyrirstaða þar. Við fórum svo í gær að skoða
íbúðina okkar í Lund. Þetta lítur allt mjög vel út. Íbúðin er tæpir 60 fm og ágætlega skipulögð - björt, með svölum, baðkari, skápaherbergi innangengt úr svefnherberginu og auka herbergi. Svo er einn skemmtilegasti parturinn eftir: pakka niður og flytja draslið :) Ef þið hafið áhuga og eigið leið hjá endilega komið og takið þátt í ánægjunni :)
Þrátt fyrir að páskarnir séu löngu löngu löngu búnir er ég enn í páskafríi. Það eru reyndar bara 2 dagar eftir, en annars fer þetta að vera gott af fríi....maður má ekki alveg missa taktinn í lærdómnum. Ég tók annars eitt próf í síðustu viku, svona til að halda mér við efnið. Gekk bara ágætlega. Núna fer svo í gang stanslaus lærdómur, því framundan eru verkefnaskil, skýrslur, fyrirlestrar og svo próf í lok maí.....og ef allt gengur vel þá eru þetta síðustu prófin sem ég tek, ever... (..ja, já held ég alla vega... ;) )
Það er komið íslenskt sumarveður hérna í Malmö (það er enn vetraveður í Köben!!) og er maður alveg kominn í sumarstemninguna, langar út að grilla og í útileiki....
...farin út á svalir með bækurnar....
GLEÐILEGT SUMAR!!Við erum búin að kaupa okkur sumarfrí.
Ætlum að eyða viku í París, í vikunni sem Elín á afmæli, og svo ætlum við að eyða 4 dögum í Lúxembourg hjá Sigþóri.
Það verður s.s. ekki haldið til Íslands í sumar. Það verður bara að koma seinna.
Páskar og svoleiðis
Jæja, búinn að heimta Elínu aftur. Kom á Páskadag frá Íslandi. Eftir henni komu svo góðir gestir á Grænugötu. Oddur og Kristín, Eiríkur og Vigdís og Sóldís. Þau voru hérna í Páskamatnum. Ekta íslenskt lamb. Nammi namm...a la Elín. :) Við héngum svo hérna fram eftir kvöldi og sötruðum á bjór og rauðvíni. Sólbakkafjölskyldan ákvað að gista hérna svo við Elín létum eftir okkur rúmið okkar. Við erum búin að vera svolítið í því þennan mánuð að gefa eftir rúmið okkar. Búið að vera mikið um gestagang. Fyrst Vesturberg, svo Austurströnd og nú Sólbakkinn. Guðbjörg M heiðraði okkur lika með nærveru sinni en hún fékk þó ekki rúmið.
Var hérna s.s Páskavikuna einn í kofanum. Var reyndar orðinn svolítið leiður á því á skírdag. Var bara á kojufyllerí alla helgina. Hehe. Nei, nei.
Elín er að fara í próf á föstudaginn svo nú er hún bara læst inni í eldhúsi að lesa. Búin að fjarlægja klukkuna af veggnum og koma henni fyrir í kompunni. Hún er svo að fara í afmæli í Dk á laugardaginn hjá Vigdísi (húsfreyju að Sólbakka).
Annars er ég að fara að sækja um inngöngu í
Háskólan í Lundi. Ætla að fara í kvöldtíma í frönsku. Ætla að sækja um það. Spænsku til vara. Ég er reyndar orðinn of seinn að sækja um en ég hringdi og sögðu að ég kæmist inn ef kúrsarnir eru ekki fullsetnir. Svo við sjáum til hvað gerist. Hvort ég komist inn eða ekki. Spennandi.
Annars er allt bara í góðu hérna á Grænugötu. Við bíðum bara eftir að fá að flytja. Kl. 12. 1.júní fáum við lyklana að nýju íbúðinni í
Lundi. (Oddur, tilbúinn að koma og hjálpa!) Það verður ljúft. Miklu styttra í allt sem við erum að gera.
Látum þetta nægja í bili.
Lifið heil.
Ps.
Það er fallegt í
Jönköping.
Mætt á skerið
Ég lagði land undir fót því í dag þrammaði yfir til Kaupmannahafnar til að taka flug hingað yfir á skerið góða :) Landið tók vel á móti mér, með roooki og rigningu eins og það gerist best! Ég ætla að vera hérna fram á sunnudag á Hótel mömmu, það er alveg strax byrjað að dekra við mann :) Ég er búin að panta fisk og með'í í kvöldmatinn...ummm.
Annars eru nýjustu fréttirnar þær að við erum búin að fá tilboð frá stúdentagörðunum í Lundi. Íbúðin er laus 1. júní og því næsta mál á dagskrá að finna leigjendur á Grönegatan sem fyrst....erum nefnilega með 3ja mánaða uppsagna frest og verðum því helst að redda sjálf leigjendum. Þannig að hér með auglýsi ég eftir lysthöfundum að taka yfir íbúðinni okkar :) Guðjón reyndar stendur sig eins og hetja, nú sem fyrr, því hann situr nú sveittur að meila öllum sem eru að óska eftir íbúðum í Malmö...og það eru ófáir búnir að svara nú þegar og eru á leiðinni að skoða. En, svo sjáum við hvað kemur út úr því....
Foreldrar hans Guðjóns fóru heim aftur í gær til Íslands eftir mjög notalegt innlit til okkar á Grænugötu. Eftir trítlið um Malmö og Lund skelltum við okkur til Jönköping sem er lítið eitt norðar í Svíþjóð. Guðjón var ekki lítið spenntur fyrir ferðinni- því Ingi hafði látið eftir honum að leigja Volvo (Guðjón er nefnilega enn að bíða eftir Volvoinum sem átti að fylgja kennitölunni!!). Eftir 3ja tíma akstur með smá vinstri beyju og ófáum trjám, lentum við hjá Óskari og fjölskyldu og áttum við mjög huggulegan dag saman. Við vorum trakteruð út í eitt og þökkum við þeim kærlega fyrir allt :)
Jönköping er mjög huggulegur bær, þar vottar fyrir smá landslagi, sem er tilbreyting frá sléttunni á riverunni. Væri til í að koma þar aftur að sumarlagi.
Jæja nú kallar mamma í matinn ;)
Ég er með sama gamla gsm númerið mitt og svo er sjálfvirkur símsvari í Vesturberginu :)
Enn tölva til sölu - bíðst hæstbjóðanda :)
Það er alveg rétt....ég get kastað einu bloggi héðan úr skólanum...já á meðan ég er hér, en annars er ég á leiðinni í 3 vikna páskafrí eftir þessa viku og á ekki að mæta hér aftur fyrr en 27. apríl. Ekki slæmt það. Það er svo sem af nógu að taka í lærdómnum sem mætti vinna á þessum tíma - og það hljómar enn meira freistandi þegar tölvuskrattinn heima er bilaður!! :)
Í síðustu viku kom Guðbjörg M til okkar á Grænugötu og var það mjög ánægjulegt að sjá gamalkunnugt andlit frá Íslandi. Hún var hér á ferðinni með mömmu sinni og frænku að heimsækja aðra frænku sína nú og svo okkur hér. Við þökkum henni kærlega fyrir innlitið og páskaeggið sem hún kom með :) ummm...
...og talandi um góðgæti þá fengum við meira íslenskt gúmmulaði um síðustu helgi þegar Ingi og Guðrún foreldrar hans Guðjóns komu til Danmerkur. Takk fyrir það :) Við trilluðum uppá flugvöll til að sækja þau ásamt Oddi...en svo þegar bólaði ekkert á foreldrunum fórum við að naga okkur í handabökin yfir því að þetta væri kannski bara aprílgabb - og það ekki af verri endanum. Við önduðum því öll léttar þegar þau komu labbandi út úr tollinum :) Í dag er svo von á þeim yfir sundið og það er komið að því að leiða þau í sannleikann um ágæti Malmö, svo er fyrirhuguð ferð til Lundar á föstudag og svo á að bruna í dagsferð á laugardag til Jönköping til bróður hans Inga.
Jæja kominn tími á skólann...ég er á leiðinni í heimsókn í fyrirtæki hér í Lundi - aldrei að vita nema að það komi eitthvað spennandi út úr því :)
Vill einhver ónýta tölvu?
Halló
Tölvan er núna algjörlega kappút.
Ekki búast vid miklu bloggi á naestunni!
Yfir.