þriðjudagur, maí 30, 2006

2 dagar eftir á Grænugötu!

Jæja, það líður að fluttningum. Við erum búin að vera að pakka niður þessu allra ómerkilegasta. Svo verður allt sett á fullt hérna annað kvöld. Rikard, sem var á Íslandi í sumar, kemur á fimmtudagsmorguninn og hjálpar okkur. Mætir með kerru og svona. Svo kemur kannski einn úr vinnunni hjá mér og hjálpar okkur. Við þekkjum nefnilega ekkert rosalega mikið af fólki hérna í Malmö sem getur hjálpað okkur. En þetta reddast allt saman. Ég kem svo aftur á föstudag og skila lyklunum og þar með verður Grænagata yfirgefin að eilífu.

Svo vill ég benda öllum á, sem vilja láta taka sig í rassgatið, að hafa samband við Telia.

fimmtudagur, maí 25, 2006

Takk fyrir mig!

Takk kærlega fyrir allar kveðjurnar.

Ég fór eins og vanalega í vinnunna og eftir vinnu fórum við Elín út að borða. Fórum á steikhús við Litla Torg. Mjög fínt.
Svo komum við heim og þar biðu mín afmælisgjafir. Aldeilis.
Krokkett sett, skyrtur og nærbuxur. Svo fékk ég flott glös frá Oddi og Kristínu. (takk fyrir mig)

Svo sat maður hérna og hlustaði á KR vinna Fylki. "Svart/hvíta" útvarpið út um allan heim!!

Svo vil ég nota tækifærið og óska henni Ellu frænku minni á Akureyri til hamingju með afmælið í gær. Besti afmælisdagur í heimi er það ekki?

miðvikudagur, maí 24, 2006

ammili


hann á afmæli í dag
hann á afmæli í dag
hann á afmæli hann Guðjón
hann á afmæli í dag


Til hamingju með daginn ezkan mín :)

sunnudagur, maí 21, 2006

Freistandi tilboð

Það barst bréf inn um bréfalúguna á föstudag frá sænska mogganum þar sem var verið að bjóða öldungnum á heimilinu að senda inn ævisöguna ásamt mynd í tilefni stóru tímamótanna í júní. Spurning hvort maður slái ekki bara til og sendi inn efni í aukablað 22. júní...

...spennt að sjá hvað kemur næst....

miðvikudagur, maí 17, 2006

Kominn tími á blogg.......

Já, það er allt of langt síðan við höfum bloggað. Ekkert að standa okkur. Best ég skrifi nokkrar línur hérna. Er einn heima. Elín er í Kbh með Guðbjörgu Þ og Öglu. Ég var að horfa á úrslitaleikinn í Champions League. Hefði nú viljað sjá Arsenal vinna. En því miður. Lehmann í einhverju rugli og þeir gátu ekki haldið í Barca.

Talandi um úrslitaleiki........Gerrard.......ÖSSSSSSSSSSSS...(sorry pabbi). Það þarf ekkert að segja meira. Markið er annars hægt að sjá hérna.

Annars er ekkert rosalega mikið að frétta. Allt er klárt með íbúðina. Erum s.s að flytja til Lundar 1.júní. Það er fimmtudagur en ég er búinn að fá frí í vinnunni þessa daga svo maður geti stússast í flytningum og svona. Hengja upp myndir og svona. Stuð.
Já, það er bara kominn júní. Tíminn líður ekkert smá hratt. Elín klárar í nóvember og það liggur við að það sé bara handan við hornið.
19.júní förum við til Parísar. Það verður fínt. Elín verður 30 22.júní meðan við erum í París, svo maður verður að kaupa eitthvað fínt handa henni áður en við leggjum af stað. Reyndar er ég ekki viss um hvort ég eigi að kaupa eitthvað í París eða í Svíþjóð því Elín er forvitnasta manneskja í heimi og á örugglega eftir að umtörna öllu hérna að leita að gjöfinni. Svo það má ekki kaupa hana of snemma!!! :)

Vorum á tvennum tónleikum um helgina. Á laugardagskvöldið fórum við á frábæra tónleika með Belle & Sebastian. Tónleikarnir voru haldnir í Kulturbolaget hérna í Malmö. Frábær staður. Frábær stemning og frábærir tónleikar. Þeir voru geggjaðir. Á mánudeginum (ef maður getur kallað það helgi) fórum við á tónleika aftur í KB. Þá var Teitur að halda tónleika. Rólegir tónleikar en mjög góðir. Hann kann þetta Færeyingurinn. Ekki eins mikið að fólki. Svona "sitjandi" tónleikar. En allir glaðir og ánægðir. Góður.

Næstu helgi er mikið að gerast. Ég er að fara á föstudaginn í grillpartý hjá Hoya, fyrirtæki sem framleiðir og selur gleraugnagler. Svo er Lundakarnevalen á laugardaginn. Það er hátíð sem er haldin í Lundi 4.hvert ár. Rosa húllumhæ og svona. Svona eins og útihátíðin í Galtalæk! ("já, en mamma, ég er að fara í Galtalæk")

Já, og ekki má gleyma Eurovision. Ja hérna. Ef Svíar vinna þá verð ég geðveikur. Þeir eru hræðilegir að búa til lög. Það þarf allt að vera eitthvað abba kjaftæði. Sjáiði þegar Belgía, og Eistland spila. Það eru líka Svíar sem semja lögin fyrir þá. Týpískt abba. Takið eftir að ég skrifa abba með litlum stöfum. Enda hundleiðinleg hljómsveit. Maður verður víst að kjósa Silvíu, þótt maður sé ekkert að drepast úr spenningi. Á ekki von á því að við komumst í úrslitin á laugardagskvöldið. Eins og segir í laginu: "...áfram Ísland, jafnvel þótt við getum ekki neitt.."

Það verður að viðurkennast að við erum ekki alveg nógu dugleg að blogga. En það væri nú samt skemmtilegra ef fólk myndi nú skrifa komment svona við og við. Svo við sjáum að einhver les nú þessa vitleysu. Því annars getum við bara hætt þessu.

Jæja, nóg í bili

þriðjudagur, maí 02, 2006

Liverpool-brandari

Fékk tennan sendan frá Svenna. Gódur!

The Liverpool manager sent scouts out around the world looking for anew striker and hopefully win Liverpool the title.
One of the scouts informs him of a young Iraqi striker who he thinks will turn out to be a true superstar.
The Liverpool manager flies to Baghdad to watch him and is suitably impressed and arranges for him to come over to Anfield.
Two weeks later Liverpool are 4-0 down to Manchester United with only20 minutes left. The manager gives the young Iraqi striker the nod and on he goes. The lad is a sensation, scores 5 in 20 minutes and wins the game forLiverpool. The fans are delighted, the players and coaches are delighted and the media love the new star.
When the player comes off the pitch he phones his mum to tell her about his first day in English football.
Hello mum, guess what?" he say's. "I played for 20 minutes today, wewere 4-0 down but I scored 5 and we won. Everybody loves me, the fans, the media, they all love me.
"Wonderful," says his mum, "Let me tell you about my day. Your father got shot in the street, your sister and I were ambushed and beaten and your brother has joined a gang of looters while you were having a great time."
The young lad is very upset, "What can I say mum, but I'm so sorry."
"Sorry!" says his mum, "It's your fault we moved to Liverpool in thefirst place!"