Alive and kickin' !!!
Nei, þetta er miskilningur, við erum ekki dauð!!!Það er reyndar orðið frekar langt síðan við blogguðum síðast en nú verður bætt úr því.
Við erum hress og kát og líður jättebra í Svíþjóð. Elín er á fullu í skólanum eins og venjulega, og ég er alltaf að vinna. Enn á 2 stöðum. Það er frekar leiðinlegt að vera á 2 stöðum en það reddast alveg. Var reyndar vanur að vinna á 3-4 stöðum á Íslandi, og það helst í einu. Svo ég lifi þetta alveg af. Við erum reyndar að drepast úr fýlu yfir þessum hlandbolta. Ekkert smá pínlegt að tapa fyrir nojorunum. Alveg mis. Við vorum diggir stuðningsmenn landsliðsins og erum ekki sátt. (prumpu Danir.....alveg pirrandi).
Við erum bæði að fara til útlanda í febrúar. Elín er að fara í næstu viku til Leipzig í 30 ára afmæli Ellenar vinkonu sinnar. Guðbjörg Þorsteins, vinkona Elínar, kemur til okkkar í heimsókn næsta þriðjudag og þær stöllurnar, auk Öglu, leggja svo Þýskaland undir sig á fimmtudag. Ég er svo að fara helgina eftir til Gumma í Frankfurt. Bolti og bjór.
Oddur flutti til Köben í síðustu viku. Hann og Pétur vinur hans eru búnir að hefja sambúð á Eyrnasundskleppi. Við fórum í heimsókn síðasta föstudag og Oddur kom svo til okkar á laugardag.
Elín gerðist partýsmellur um daginn þegar hún kom í partý með HÁKARL!!! Fólk fékk að smakka á þessu..............tómt rugl. Ég fór næstum því að æla. Næsta laugardag er svo fólk að koma í mat til okkar. Elín kom líka með hangikjöt, harðfisk og önnur góðgæti með sér frá Íslandi og nú verður þetta borið ofan í Mexíkana, Norðmann og Pólverja! Gott kombó. Vona að Pólverjarnir komi með Prins Póló.....nammi namm!!
Að lokum má nefna það að við erum farin að líta í kringum okkur að nýrri íbúð. Ætlum hugsanlega að flytja til Lundar. Meira um það síðar.
Ps.
Þrátt fyrir ítrekaðar áskoranir, þá verða ekki birtar teiknimyndir af Múhammeð á þessari síðu.
0 Comments:
Skrifa ummæli
<< Home