Kominn tími á blogg.......
Já, það er allt of langt síðan við höfum bloggað. Ekkert að standa okkur. Best ég skrifi nokkrar línur hérna. Er einn heima. Elín er í Kbh með Guðbjörgu Þ og Öglu. Ég var að horfa á úrslitaleikinn í Champions League. Hefði nú viljað sjá Arsenal vinna. En því miður. Lehmann í einhverju rugli og þeir gátu ekki haldið í Barca.Talandi um úrslitaleiki........Gerrard.......ÖSSSSSSSSSSSS...(sorry pabbi). Það þarf ekkert að segja meira. Markið er annars hægt að sjá hérna.
Annars er ekkert rosalega mikið að frétta. Allt er klárt með íbúðina. Erum s.s að flytja til Lundar 1.júní. Það er fimmtudagur en ég er búinn að fá frí í vinnunni þessa daga svo maður geti stússast í flytningum og svona. Hengja upp myndir og svona. Stuð.
Já, það er bara kominn júní. Tíminn líður ekkert smá hratt. Elín klárar í nóvember og það liggur við að það sé bara handan við hornið.
19.júní förum við til Parísar. Það verður fínt. Elín verður 30 22.júní meðan við erum í París, svo maður verður að kaupa eitthvað fínt handa henni áður en við leggjum af stað. Reyndar er ég ekki viss um hvort ég eigi að kaupa eitthvað í París eða í Svíþjóð því Elín er forvitnasta manneskja í heimi og á örugglega eftir að umtörna öllu hérna að leita að gjöfinni. Svo það má ekki kaupa hana of snemma!!! :)
Vorum á tvennum tónleikum um helgina. Á laugardagskvöldið fórum við á frábæra tónleika með Belle & Sebastian. Tónleikarnir voru haldnir í Kulturbolaget hérna í Malmö. Frábær staður. Frábær stemning og frábærir tónleikar. Þeir voru geggjaðir. Á mánudeginum (ef maður getur kallað það helgi) fórum við á tónleika aftur í KB. Þá var Teitur að halda tónleika. Rólegir tónleikar en mjög góðir. Hann kann þetta Færeyingurinn. Ekki eins mikið að fólki. Svona "sitjandi" tónleikar. En allir glaðir og ánægðir. Góður.
Næstu helgi er mikið að gerast. Ég er að fara á föstudaginn í grillpartý hjá Hoya, fyrirtæki sem framleiðir og selur gleraugnagler. Svo er Lundakarnevalen á laugardaginn. Það er hátíð sem er haldin í Lundi 4.hvert ár. Rosa húllumhæ og svona. Svona eins og útihátíðin í Galtalæk! ("já, en mamma, ég er að fara í Galtalæk")
Já, og ekki má gleyma Eurovision. Ja hérna. Ef Svíar vinna þá verð ég geðveikur. Þeir eru hræðilegir að búa til lög. Það þarf allt að vera eitthvað abba kjaftæði. Sjáiði þegar Belgía, og Eistland spila. Það eru líka Svíar sem semja lögin fyrir þá. Týpískt abba. Takið eftir að ég skrifa abba með litlum stöfum. Enda hundleiðinleg hljómsveit. Maður verður víst að kjósa Silvíu, þótt maður sé ekkert að drepast úr spenningi. Á ekki von á því að við komumst í úrslitin á laugardagskvöldið. Eins og segir í laginu: "...áfram Ísland, jafnvel þótt við getum ekki neitt.."
Það verður að viðurkennast að við erum ekki alveg nógu dugleg að blogga. En það væri nú samt skemmtilegra ef fólk myndi nú skrifa komment svona við og við. Svo við sjáum að einhver les nú þessa vitleysu. Því annars getum við bara hætt þessu.
Jæja, nóg í bili
8 Comments:
MIKID VAR........... Tekur eftir tví ad tad er skrifad med STÓRUM støfum. HEHE
MIKID VAR........... Tekur eftir tví ad tad er skrifad med STÓRUM støfum. HEHE
Ég er dyggur aðdáandi síðunnar og vona að þið farið nú að taka ykkur saman í andlitinu og sinna aðdáendunum betur!!! Skemmtu þér annars vel í gleraugna-grillinu!
Ég kíki daglega á síðuna, og vil fá tíðari fréttir ;) Það væri gaman að fá að sjá myndir af nýju íbúðinni líka :) Til hamingju með Lund.
Einu sinni man �g eftir Gu�j�ni � Grenimelnum (13-15 �ra) spilandi Abba � botn. �� f�la�ir �essa gl��v�ru sv�a mj�g miki�.
Svenni Fr�ndi.
Er í aðdáendahópnum Guðjón minn;O)
Engar áhyggjur
Seljan
Stadfesting á pöntun hjá Optical Studio. :...
- 2 pk af Stuðjóna-skemmtilegum linsum
- 1 kippa af besta bjór (Carlsberg,ef ekki bestur þá standa þeir allavega á bakvið besta fussball liðinu)
bestu kveðjur frá kef Burkni
hæ frændi gott að ykkur líður vel í sverge sem mér finnst á topp 5 með hallærislegu löndum í heimi heheh..en ekki niðra abba maður það er alveg hægt að djamma með abba á fóninum við erum alinn upp við skilurrru..en bið að heilsa nöfnu kveðja frá Akureyricity Ella
Skrifa ummæli
<< Home