miðvikudagur, mars 22, 2006

Lífið, tilveran og íbúðarleit

Heil og sæl öllsömul.
Í síðustu viku voru Halla og Búi í heimsókn bæði í Kaupmannahöfn og Malmö. Enda eiga þau afkvæmi beggja vegna við Öresund. Þau voru hjá Eiríki, Vigdísi og Sóldísi fram yfir helgina og komu svo yfir til Svíþjóðar og gistu hérna hjá okkur í vikutíma. Þau komu með alls konar góðgæti að heiman. Nammi, og mat ýmiskonar og þökkum við kærlega fyrir það. Þau spókuðu sig í góða (en kalda) veðrinu bæði í Malmö og Lundi í fylgd Elínar og þótti Malmö bara hin besta borg. Þau kvöddu svo á laugardaginn. Við fórum yfir til Köben á föstudagskvöldið og borðuðum á Solbakken heima hjá Eríki og Vigdísi með Höllu og Búa. Mjög kósí kvöld. Við komum svo bara yfir með lestinni um nóttina.

Tja, íbúarleit............hvað getur maður sagt!! ÞAÐ ER EKKERT AÐ GERAST!!! Það er vitavonlaust að fá íbúð í þessum blessaða Lundi. Gengur ekki neitt. Þar sem aðeins helmingur heimilisfólksins er stúderandi í Lundi er alveg vonlaust fyrir okkur að fá stúdentaíbúðir.....yrðum bara númer miljón í röðinni. Þannig að við erum búin að stækka svæðið sem við erum að leita að . Nú erum við farin jafnvel að leita að einhverju ódýrara bara í Malmö. Vonum að það beri betri árangur. Því við erum alveg að gefast upp á að finna eitthvað í Lundi. Kannski ef við fáum ódýrari íbúð hérna, þá erum við kannski í betri stöðu til að bítta með einhverjum í Lundi seinna. Hver veit. Sjáum til hvað setur.

Var að lesa á fótbolti.net að Grótta hefði bara unnið Leikni í æfingaleik. Nei, bara vildi nefna það svona. Já, og svo vann Liverpool 7-0 um daginn. Finnst bara svo gaman að minnast á svona. Menn taka það svo bara til sín ef þeir vilja.

2 Comments:

At laugardagur, mars 25, 2006, Anonymous Nafnlaus said...

Takk fyrir þessa dýrðardaga sem við áttum með ykkur. Okkur leið vel í fallegu íbúðinni ykkar. Góð hvíld og tilbreyting að koma til Malmö þar sem er mun minna stress en hérna í Reykjavík.
Enn og aftur takk fyrir tímann okkar saman þessa viku sem við dvöldum hjá ykkur. Hafið það sem best. Kveðja Halla og Búi

 
At mánudagur, mars 27, 2006, Anonymous Nafnlaus said...

Nú thegar minnst er á Leikni, thá unnu their KR med sex mørkum um daginn. Sjá nánar hér:

http://leiknir.com//default.asp?op=frettir&sop=einfrett&frett=2097

Alveg hreint stórøflugt thetta Leiknislid !

 

Skrifa ummæli

<< Home