mánudagur, mars 06, 2006

Elífur vetur!

Já, það er rétt. Hérna er eilífur vetur. Það mun aldrei koma sumar og meðalhiti ársins verður einhvers staðar undir frostmarki!! Maður er alveg að verða geðveikur á þessum snjó. Það hefur ekki verið svona kalt, svona lengi, í manna minnum. Ég fór líka í klippingu á laugardaginn og ég get svarið það....það varð bara kaldara eftir það! Fór reyndar bara og keypti mér húfu.

Elín er búin að vera í stanslausum prófum og hefur hún varla sést á Grænugötu undanfarin misseri. Hefur hangið í Lund og lesið. Þetta fer reyndar að vera búið hjá henni. Hún var í prófi í dag og gekk það bara ágætlega.

Ég er annars að fara til Norge á miðvikudagskvöld. Við Jakob og Mads munum fljúga frá Köben um kvöldið og í Osló tekur Tore á móti okkur. Við munum keyra upp til Hemsedal, sirkus 3 tímar á fimmtudag og verðum þar fram á sunnudag. Það verður massa skíðað á föstudag og laugardag. Við verðum u.þ.b. 10 strákar í hytten og verður eflaust kátt á hjalla.

Íbúðarleitinni var lokið......héldum við. "Truntan" eins og við erum búin að ákeða að kalla hana hætti við á 11.stundu. Sendi emil til mín á laugardagsmorgunin og sagði að hún væri hætt við. Í annað sinn sem hún gerir okkur þetta. Hún er líka búin að gera okkur þetta í síðasta sinn. Hún ætlaði að mæta á laugardaginn með pappírana til að skrifa undir en ákvað þess í staða að hætta við allt saman. Við vorum hætt að leita. Búinn að taka okkur af leitarsíðunum. Algjör trunta s.s. þessi kona. Allavega ekki velkomin á Grænugötu.....það er ljóst.

Annars er von á góðum gestum. Halla og Búi eru að koma í heimsókn. Verða með annan fótinn í Köben hjá Eika og Vigdísi og hinn fótinn hjá okkur. Ég kem reyndar ekki heim fyrr en á sunnudag en ég held þau ætli að byrja í Köben og koma svo til okkar eftir helgi. Svo eru mamma og pabbi að koma hérna í byrjun apríl. 1.apríl í algjöru gabb-stuði!! Það verður s.s mikið um gestagang á Grænugötu næstu vikurnar.

Janus og Tinna voru hjá okkur á laugardagskvöldið. Þau komu hérna um daginn og við fórum út að borða á La Empanada. Fín tex-mex kantína. Ódýrt og gott. Við sátum svo hérna fram eftir og drukkum bjór og rauðvín, og borðuðum osta og snakk. Kósi. Takk fyrir komuna Janus og Tinna.

2 Comments:

At þriðjudagur, mars 07, 2006, Anonymous Nafnlaus said...

ég verð nú bara að spyrja! Hvaða HÁR vast þú að klippa? það er nú ekki það mikið eftir að það þurfi að klippa þessi 3 strá sem eftir eru á höfðinu á þér!

Kv. Oddur

 
At þriðjudagur, mars 14, 2006, Anonymous Nafnlaus said...

Djöfull eru menn að hrúga inn færslunum hérna!

kv. Oddur

 

Skrifa ummæli

<< Home