laugardagur, febrúar 11, 2006

Helgi

Föstudagskvöld: Hangið heima. Popp og kók og Notting Hill. Algjör kelling.

Laugardagur: Oddur og Kristín ætla að koma yfir. Við ætlum til Lundar. Ég ætla að kíkja á Synoptik í Lundi. Bossinn var nefnilega að spyrja hvort ég vildi vinna þar frekar en í Burlöv/Triangeln þegar ég væri fluttur. Ég sagðist vilja sjá búðina áður. Svo er þetta bara ferð til að kíkja á mannlífið í Lundi. Aldrei farið þangað svona bara til að kíkja á bæinn og labba um og svona. Oddur og Kristín ætla s.s. með. Í kvöld verður bara slappað af. Ætli það verði ekki bara popp og kók aftur. Kannski með smá twist. Kannski ís. Hver veit.

Sunnudagur: Golfsýning í Malmö. Ég og Ricard erum að fara að kíkja á það nýjasta sem golfíþróttin hefur upp á að bjóða. Það verður fínt. S.s róleg helgi og afslöppun. Enda er ég í fríi. Elín kemur svo heim um kvöldið frá Djörmaní.

0 Comments:

Skrifa ummæli

<< Home