Noregur og heimsókn
Jæja, langt síðan við blogguðum síðast. Kominn tími á nýtt blogg.Já, ég var s.s. í Hemsedal í Noregi í síðustu viku. Þvílíkt gaman. Noregur kom þvílíkt sterkur inn. Ég er líka mjög góður á skíðum. Algjör Tomba La Bomba!! Við Mads og Jakob fórum á miðvikudagskvöldinu kl. 20 frá Köben og Tore og Bo tóku á móti okkur í Osló og við keyrðum beinustu leið í Hemsedal. Vorum komnir um 1 leitið um nóttina. Með þessu móti fengum við nefnilega auka dag á skíðum. Í staðinn fyrir að nota fimmtudaginn í ferðalag, var skíðað. Það þarf svo sem ekkert að skrifa neitt rosalega mikið um þessa ferð. Það er hægt að summera þetta nokkurn veginn upp í "bjór-skíði-matur-buzz". Vakað frameftir og vaknað snemma. Álag á manni. En svona er þetta. Á sunnudeginum var ég kominn frekar snemma til Osló aftur og átti ekki flug fyrr en seint um kvöldið svo ég fór í heimsókn til Daníels og fjölskyldu. Haukur kom og sótti mig á brautarstöðinni og við héngum bara í íbúðinni og dúlluðum okkur. Daníel var í hörku stuði og lék á alls oddi. Sniðugur strákur.....svona eins og pabbinn!! (er það ekki Haukur?) Var þar svo í kvöldmat og svona. Svo komu Tore, Mads og Jakob og sóttu mig og við fórum saman út í Gardemoen.
Þegar ég kom aftur, eftir miðnæti á aðfaranótt mánudags, voru Halla og Búi komin í heimsókn og eru þau búin að vera hjá okkur alla vikuna. Þau eru að fara aftur til Köben á morgun og fara svo heim á laugardaginn. Elín mun skrifa meira um vikuna okkar með þeim í næsta bloggi.
Frh.
1 Comments:
Hvað eru þið með Blogg það eru allir komnir með blogg. Núna getur maður farið að fylgjast með ykkur. Það er nú mjög langt síðan að þú hefur komið inn á msn Guðjón ertu kannski kominn með aðra adressu þar. Enn vá hvað mig langaði á skíði þegar ég sá myndirnar. Ég er nú að fara til Noregs 20 apríl með 20 kjellum. Enn enginn tími til að fara á skíða. Enn hér er búið að vera nó að gera eftir að nýi fjölskyldumeðlimurinn bættist við.
Við biðjum að heilsa ykkur og gangi ykkur vel. kv. Gyða Steina
Skrifa ummæli
<< Home