Verzlunarmannahelgin:
Kristín kom til okkar um verzlunarmannahelgina og fórum við í svona smá "road-trip". Hún kom til okkar á föstudagskvöldinu og var fram á sunnudag. Við gátum ekki látið hana dúsa eina í Köben, greyið. Tókum hana aðeins að okkur. Við höfðum fengið Volvo 244, 89 módelið lánað frá Rikard (aftur) og fórum í ferðalag. Ég vakti stelpurnar með látum á laugardagsmorgni kl.7 og við vorum komin út í bíl rétt eftir kl.8. Við keyrðum upp til Jönköping fyrst og spókuðum okkur í góða veðrinu. Gengum aðeins um bæinn og fengum okkur hádegismat og sýndum okkur og sáum aðra. Það var mjög fínt. Enda Jönköping alveg bjútífúll. Eftir það keyrðum við upp til Gränna, sem er smábær ca 10 mín akstur frá Jönköping (Jönköping er mitt á milli Gautaborgar og Stokkhólms, ef einhverjir vilja ímynda sér þetta). Þar eru búnir til hinir svokölluðu Polkagriser, sem eru heimsfrægir. Eru basicly Bismark brjóstsykursmolar frá Opal. Svona rauðir og hvítir. Þeir segja að þeir séu fundnir upp þarna eða eitthvað. Er ekki alveg viss. Anyway. Héldum svo stað heim um kvöldmatarleitið og vorum komin til Lundar aftur um 8 um kvöldið. Mjög fín ferð. Alveg markmið að reyna að sjá sem mest af Svíþjóð meðan við búum hérna. Eigum reyndar Stokkhólm og Gautaborg eftir. Á sunnudeginum var slappað af og farið aðeins að skoða í húsgagnabúðum og skuttluðum við svo Kristínu út á brautarstöð eftir það.
Fín helgi.
Síðan þá....
...hefur svo sem lítið gerst. Daglegt líf ef þannig má að orði komast. Keyptum okkur reyndar ferð til Frankfurt, Elín og ég, Oddur og Kristín ætlum að heimsækja Sigþór, Lindu og fjölskyldu í Lúxembourg. Við erum búin að leigja bíl og alles. Verður frábær ferð. Fengum 2 fyrir 1 á Sterling. Elín er þannig séð lögð af stað til Íslands. Lilja og Agla komu til okkar í gær og var grillað og drukkið rauðvín. Sungið og spilað og dansað og læti. Lilja í miklum ham á dansgólfinu!
Þær fóru svo allar stöllurnar til Köben í dag og fer Elín svo með hádegisvélinni frá FI til Íslands. Hún ætlar að vera í viku. Mexíkósk skólasystir hennar kemur með henni til Íslands og verður fram á mánudag eða þriðjudag. Er ekki alveg viss. Ég kem svo á miðvikudagskvöldið og förum við svo saman tilbaka á sunnudaginn. Verður fín ferð. Menningarnóttin í Rvk verður næstkomandi laugardag svo maður fer náttúrlulega á það. Svo er líka Brothers Open golfmótið um laugardaginn. Munum s.s hitta alla fjölskylduna, svo gott sem. Verður fín ferð.
Alltaf gaman að koma heim.
Nóg í bili.
Síja.
Til Frankfurt!!! Hvað með Leipzig??? Þetta er í annað skipti sem þið farið til Þýskalands án þess að heimsækja mig :( Svindl.
SvaraEyða