fimmtudagur, ágúst 03, 2006

Hitt og þetta

Jæja, kominn tími til að ég bloggi aðeins. Af okkur er bara allt það fínasta að frétta, við erum mjög spræk í eilífðri sól og sumri. Vinna og skóli ganga sinn vanagang. Guðjón er alltaf jafn ánægður í vinnunni. Sjálf er ég byrjuð á fullu á lokaverkefninu þar sem ég vinn 17 vikur á rannsóknarstofunni og svo ég skrifa ritgerðina. Ef allt gengur að óskum þá verð ég búin að skila af mér fyrir lok nóvember. ....Hvað svo? ómögulegt að segja til á þessari stundu....

Heimsóknir
Það hafa nokkrir lagt leið sína hingað til Lund í sumar, núna síðast voru hér þær stöllur Guðbjörg Þ og Lilja hjá okkur í heimsókn. Við eyddum saman helginni í Kaupmannahöfn hjá Öglu og svo komu þær með mér yfir og voru í 2 daga. Við skoðuðum Malmö, lágum á bryggjunni í sólinni, versluðum, borðuðum ís einn eða tvo og þrömmuðum um í Lund. Allt of fljótt að líða :( Takk kærlega fyrir komuna ezkurnar :)

Í lok ágúst er svo von á gamla settinu úr Berginu :) Þau ætla að vera á Eyrarsundssvæðinu í 10 daga og láta Lund að sjálfsögðu ekki fram hjá sér fara!

Svo er spurning hvort það sé ekki kominn tími á að gestir eins og Ellen Dröfn og fleiri góðir gestir fari að láta sjá sig á staðnum :) Allir velkomnir!

Ferðalög
Við erum komin enn og aftur á Volvo-kaggann (89 módel) sem Rikard lánar okkur og planið er að leggja land undir fót um helgina-enda Verslunarmannahelgi. Við ætlum samt ekki á útihátíð eða sofa í tjaldi útí móa heldur bruna upp til Jönköping og nærsveitir á laugardaginn. Kristín hans Odds ætlar að koma með okkur :) Svo verður bara látið ráðast hvert verður farið á sunnudeginum....meira síðar. Set inn myndir við tækifæri-fórum nefnilega tour de Skåne í júlí á sama kagga.

Ísland er svo innan seilingar. Það eru 9 dagar í að maður lendi á skerinu og nokkrir dagar í viðbót í Guðjón. Þetta verður stuð-aðeins að kæla sig niður eftir non-stop-sólarsumarið og fá sér netta lúku af íslensku nammi, ummmmm

3 ummæli:

  1. Farið vel með Kristín!!!

    kv. Oddur

    ps. mæli með nýja KV laginu
    www.sammarinn.com/Tonlist/aframkv.mp3

    SvaraEyða
  2. Já, mig langar mikið að koma í heimsókn, ég reyni mjög líklega að heimsækja ykkur fyrir jól, kannski ekki seinna vænna...? En þið eruð líka ávallt velkomin hingað ;)

    SvaraEyða
  3. Já munið bara eftir að taka pollagallana með! :o)

    SvaraEyða